Hafnarfjörður braut stjórnsýslulög þegar fallið var frá ráðningu

Óskar Steinn Ómarsson segir að opin­ber gagn­rýni hans á meiri­hlut­ann í Hafn­ar­firði hafi orðið til þess að ráðn­ing hans við skóla var aft­ur­kölluð. Umboðs­maður Alþingis stað­festir að með­ferðin hafi ekki verið í sam­ræmi við stjórn­sýslu­lög og kallar eftir umbótum.

Hafnarfjörður braut stjórnsýslulög þegar fallið var frá ráðningu
Óskar Steinn Ómarsson Umboðs­maður Alþingis hvetur Hafn­ar­fjarð­arbæ til að bæta Óskari Steini upp tjónið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Máls­með­ferð Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar var ekki í sam­ræmi við stjórn­sýslu­lög þegar skóla­stjóri Hraun­valla­stjóra féll frá ráðn­ingu umsækj­anda í starf, deild­ar­stjóra tóm­stunda­mið­stöðvar skól­ans, þremur vikum eftir að hafa ráðið hann til starfs­ins.

Þetta er nið­ur­staða Umboðs­manns Alþingis, sem beinir þeim til­mælum til Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar að leita leiða til að rétta hlut Óskars Steins og að taka fram­vegis mið af þeim sjón­ar­miðum sem koma fram í áliti sem birt var opin­ber­lega í dag.

„Þá liggur það fyrir,“ skrifar umsækj­and­inn, Óskar Steinn Ómarsson, á Facebook. „Hafn­ar­fjarð­ar­bær braut stjórn­sýslu­lög með því að aft­ur­kalla ráðn­ingu mína í starf hjá bænum.“

Óskar kvart­aði til Umboðs­manns Alþingis í októ­ber 2024. „Nú liggur álit Umboðs­manns í mál­inu fyrir og verður því ekki lýst öðru­vísi en sem áfell­is­dómi yfir stjórn­sýslu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar,“ skrifar hann. „Mála­til­bún­aði bæj­ar­ins er hafnað og nið­ur­staðan sú að hann hafi skort laga­heim­ild til að falla frá ráðn­ing­unni. Enn fremur hafi máls­með­ferð bæj­ar­ins brotið í bága við stjórn­sýslu­lög.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár