Tveir starfsmenn Heilsugæslu Miðbæjar smitaðir af berklum

Tveir starfs­menn á Heilsu­gæslu Miðbæjar hafa greinst með berkla. Hvorugur er með ein­kenni og þeir eru ekki smit­andi. Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur ski­mað fram­línu­starfs­fólk í örygg­is­skyni og hyggst halda því áfram.

Tveir starfsmenn Heilsugæslu Miðbæjar smitaðir af berklum

Tveir starfs­menn á Heilsu­gæsl­unni Miðbæ greindust með berkla­smit við skimun á starfs­fólki stöðv­ar­innar að því er segir í til­kynn­ingu frá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Fólkið er þó ekki smit­andi og sýnir engin ein­kenni berkla. „Skjól­stæð­ingar stöðv­ar­innar hafa því ekki verið útsettir fyrir smiti í sam­skiptum við starfs­menn­ina.“

Fram­línu­starfs­fólk HH var ski­mað fyrir berklum í örygg­is­skyni í kjöl­far þess að berklar greindust hjá starfs­fólki bráða­mót­tök­unnar nýlega. Fyrst á þeim starfs­stöðvum þar sem talið var lík­legt að starfs­fólk hefði verið í sam­skiptum við ein­stak­linga sem gætu verið smit­aðir af berklum.

„Í ljós kom að tveir starfs­menn Heilsu­gæsl­unnar Miðbæ eru með berkla­smit. Smit þýðir að bakt­er­ían greind­ist í blóði starfs­mann­anna. Þeir eru ekki með nein ein­kenni og eru ekki smit­andi. Starfs­menn­irnir tveir fara nú í frek­ari rann­sóknir og í kjöl­farið í við­tal og mögu­lega með­ferð hjá smit­sjúk­dóma­lækni.“

Berklar smit­ast við langvar­andi eða náin sam­skipti við ein­stak­ling sem hefur virka eða smit­andi berkla í lungum. Tekið er fram í til­kynn­ingu að þeir smit­ist ekki við snert­ingu, af yfir­borðum eða með því að nota áhöld eða fatnað sem smit­aður ein­stak­lingur hefur notað. 

Áfram verður haldið að skima fram­línu­starfs­fólk Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár