Leikkonan Júlíana Sara Gunnarsdóttir vill vara foreldra við eftir atvik sem dóttir hennar og vinkonur lentu í við Smáralind í gær.
„Mér finnst ég bera skyldu til að segja ykkur hvað gerðist í gær,“ skrifar hún í færslu á Facebook í dag. „Dóttir mín og vinkonur hennar voru að labba heim frá Smáralind eftir vel heppnaðan öskudag. Þær voru stoppaðar af miðaldra manni sem var á gráum sendiferðabíl. Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn með því að segja þeim að hann ætti nóg af súkkulaði og nammi handa þeim.“
Eins og þekkt er fara börn gjarnan uppáklædd í búninga á milli verslana á öskudag til að syngja í skiptum fyrir sælgæti. „Sem betur fer neituðu þær því og drifu sig heim til einnar og sluppu þær því með skrekkinn,“ skrifar Júlíana Sara um tilraun mannsins til að lokka þær. „Þetta var eðlilega mikið sjokk fyrir þær og voru …
















































Athugasemdir