Ísraelsstjórn ætlar að „hvetja“ Palestínumenn til að flytja úr landi

Ísra­els­ríki sam­þykk­ir að­gerð­ir til að yf­ir­taka meira palestínskt land. Hálf millj­ón Ísra­ela býr á ólög­leg­um land­nem­a­byggð­um.

Ísraelsstjórn ætlar að „hvetja“ Palestínumenn til að flytja úr landi
Hvatt til brottflutnings Palestínsk börn leika sér á trampólíni í þorpinu Umm Safa, norður af Ramallah, á Vesturbakkanum, með ísraelska fánann í bakgrunni. Ísrael hefur samþykkt ferli sem gerir land á Vesturbakkanum að ríkiseign, sem auðveldar framsal til ísraelskra landnema. Mynd: AFP

Fjármálaráðherra Ísraels, Bezalel Smotrich, sem er lengst til hægri í stjórnmálum, sagðist ætla að fylgja stefnu sem „hvetur til brottflutnings“ Palestínumanna frá hernumdu Vesturbakkanum og Gasasvæðinu, að því er ísraelskir fjölmiðlar greindu frá í dag.

„Við munum útrýma hugmyndinni um arabískt hryðjuverkaríki,“ sagði Smotrich á viðburði sem Trúarlegi zíonistaflokkurinn hans stóð fyrir seint í gær.

„Við munum loksins, formlega og í reynd, ógilda hina bölvuðu Óslóarsamninga og hefja vegferð í átt að fullveldi, um leið og við hvetjum til brottflutnings bæði frá Gasa og Júdeu og Samaríu.“

„Það er engin önnur langtímalausn,“ bætti Smotrich við, en hann býr sjálfur í landnemabyggð á Vesturbakkanum.

Frá því í síðustu viku hefur Ísrael samþykkt ýmsar aðgerðir sem studdar eru af ráðherrum lengst til hægri til að herða yfirráð á Vesturbakkanum, þar á meðal á svæðum sem stjórnað er af heimastjórn Palestínumanna samkvæmt Óslóarsamningunum, sem hafa verið í gildi frá tíunda áratugnum.

Aðgerðirnar …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Þetta er trúarbragðastríð.

    Gyðingar trúa því að guðinn hafi gefið meintum forföður þeirra, Abraham, landið umfram aðra menn. Afkomendur hans voru reyndar aðeins stuttan tíma í Ísrael, ca 3 kynslóðir áður en þeir fluttust til Egyptalands og gerðust síðar þrælar Egypta, svo þeir hafa í mesta lagi búið á nokkrum hekturum í Ísrael.

    Löngu síðar, eftir að guðinn hafði drepið alla frumburði Egypta í einni af plágunum sem hann framkallaði, leyfði Faraó, forystumaður Egypta, gyðingunum að fara til baka, en sá svo eftir því og var her Egypta drekkt í hafinu af guðinum sem hafði áður þurrkað einhverskonar götu í gegnum mitt hafið og látið það steypast yfir þá þegar þeir veittu gyðingunum eftirför. Þegar "heim" var komið gerðu gyðingarnir svo tilkall til landsins síns og fóru með hernaði gegn íbúum þess og kepptust við að uppræta þá sem tilheyrðu ekki söfnuðinum, kannski ekki alls ólíkt og í dag.

    Það er þó merkilegt að einu boðorðinu virðast Ísraelar gleyma, eða boðorðinu: Þú skalt ekki mann deyða - en það er kannski ekki skrítið því guðinn átti í mestu erfiðleikum með að fara eftir því sjálfur - samkvæmt biblíunni.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslendingar þurfa að forðast „breska kvillann“
6
ErlentHorft til Evrópu

Ís­lend­ing­ar þurfa að forð­ast „breska kvill­ann“

Þeg­ar Ír­land og Bret­land gengu sam­an í Evr­ópu­banda­lag­ið ár­ið 1973 var Ír­land fá­tækt fyrr­ver­andi ný­lendu­ríki, efna­hags­lega háð hinni gömlu herra­þjóð sinni. Hálfri öld síð­ar er Ír­land orð­ið auð­ug mið­stöð banda­rískra tæknifyr­ir­tækja á borð við Microsoft og Google. Bret­land hef­ur hins veg­ar yf­ir­gef­ið sam­band­ið. Hvaða hlut­verk lék ESB í upp­gangi Ír­lands og hvers vegna fet­uðu ná­granna­rík­in hvort sinn veg?

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár