Forstjóri Festis, sem skilaði „einstaklega góðum“ hagnaði af rekstri dagvörukeðja eins og Krónunnar og N1 í fyrra, gagnrýndi umræðu um hækkun vöruverðs í þættinum Silfrinu á RÚV í gærkvöldi.
Festi jók hagnað sinn úr 4 milljörðum króna í 6,2 milljarða í fyrra, nokkuð sem forstjórinn, Ásta Fjeldsted, viðurkennir að „hljómar stjarnfræðilega mikið“. Á sama tíma hækkaði verð á matvöru og drykk um 5,8 prósent, sem leiddi til hækkunar á verðbólgu um 0,9 prósentustig, en höfuðstóll verðtryggðra fasteignalána almennings hækkar í samræmi við það. Hækkun matarverðs kemur þrátt fyrir styrkingu krónunnar á árinu og er umfram almenna verðbólgu, sem var 5,2%, meðal annars vegna gjaldahækkana ríkisstjórnarinnar.
Lækkuðu verð á 200 vörum
„Það er alls ekki þannig að við séum að smyrja á,“ sagði Ásta og nefnir dæmi sem Krónan hefur kynnt í fjölmiðlum undanfarið. „Þvert á móti höfum við til dæmis, sérstaklega, tekið það núna, tek ég sem dæmi Krónuna aftur, af því að við erum að selja nauðsynjavörur til almennings: Við tókum upp á því að velja 200 lykilvörur og lækka um 10%. Semja þannig við lykilbirgja erlendis sem geta haldið verðinu meira stabílu. Þessu erum við að skila beint til neytenda og ekki taka til okkar.“
Gengi íslensku krónunnar styrktist um 3,5% í fyrra og má gera ráð fyrir að innfluttar vöru lækki að öðru óbreyttu í verði um það sama, að frádreginni verðbólgu, sem var um 2% á evrusvæðinu í fyrra.
Ásta taldi umræðu villandi og vísaði þar sérstaklega til olíuverðs um áramótin eftir innleiðingu kílómetragjalds.Hún sagði að olíuverð hefði verið lækkað í samræmi við lækkaðar álögur um áramót „og gott betur“.
„Það er rosalega villandi og leitt þegar verið er að tala um það í fjölmiðlum með þessum hætti, sem er ekki rétt,“ sagði Ásta.
Engu að síður viðurkenndi hún að „einstaklega góður“ hagnaður hefði orðið af rekstri Festis, á síðasta ári, á sama tíma og verð á mat og drykk hækkaði um 5,8% sem olli eitt og sér því að verðbólga varð 0,9% hærri á árinu, og hækkaði því verðtryggð fasteignalán um sama hlutfall.
„Þessir sex milljarðar, sem ég skil vel að hljómar stjarnfræðilega mikið, af hverjum 100 krónum sem koma í kassann til okkar í Festi, heilt yfir þvert á samstæðuna, þá eru þetta 3,5 krónur sem eftir standa þegar búið er að greiða skatta og önnur gjöld,“ sagði Ásta.
Almenningur græði á hagnaðinum
Ásta vísaði til þess að Festi væri skylt að skila hagnaði fyrir eigendur, sem væru í reynd íslenskur almenningur.
„Við viljum impra á því, þetta er ekki einhver afsökun, við erum félag skráð á markað. Hugmyndin með rekstri í bissness er að skila góðum rekstri. Við erum ekki að okra, við erum að hagræða gríðarlega. Það er aukin velta í hverju einasta stöðugildi hjá okkur og það sem við erum að skila til baka til samfélagsins, það er í rauninni, við erum í eigum lífeyrissjóðanna að mestu leyti til. 75 prósent eru lífeyrissjóðir sem eiga Festi. Hverjir eru að hagnast á þessu? Það er almenningur, sem á náttúrulega sinn lífeyri inni í þessum sjóðum, sem eru að ávaxta til framtíðar.“
Hún segist myndu hafa áhyggjur ef ekki væri hagnaður. „Ef hugmyndin er á Íslandi er að fyrirtæki eigi bara að standa á núlli, þá erum við með einhver önnur viðskiptaleg lögmál hér á landi heldur en annars staðar.“
Aðalfundur Festis verður haldinn 5. mars næstkomandi og kemur þá væntanlega í ljós hvernig farið verður með hagnað. Samkvæmt stefnu Festis er 50% af hagnaði greitt út sem arður. Árið 2024 greiddi Festi 1,6 milljarða króna í arð og hækkaði hlutabréfaverð í Festi um 38,5% á því ári.
Stærsti keppinautur Festis, Hagar sem reka meðal annars Bónus og Hagkaup, hagnaðist um 5,4 milljarða króna fyrstu 9 mánuði rekstrarársins. Hluthafar eru að miklu leyti þeir sömu og í Festi.














































Athugasemdir