Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir var í dag kjörin nýr for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hún er fyrsta konan sem er kjörin til for­mennsku í elsta stjórn­mála­flokki lands­ins.

Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir var í dag kjörin for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á lands­þingi flokks­ins. Hún hlaut fleiri atkvæði en mót­fram­bjóð­andi hennar, Ingi­björg Isaksen þing­maður, sem einnig sótt­ist eftir emb­ætt­inu.

Lilja hlaut 58 pró­sent greiddra atkvæða. 

Lilja er fyrsta konan sem er kjörin til for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum, elsta starf­andi stjórn­mála­flokki lands­ins. Kosn­ingin markar því tíma­mót í sögu flokks­ins.

Frá­far­andi for­maður, Sigurður Ingi Jóhanns­son, lét af emb­ætti sam­hliða for­manns­kjör­inu. Hann tók við for­ystu flokks­ins árið 2016 í kjöl­far afhjúpana tengdum Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni í Panama­skjöl­unum. Þar komu fram upp­lýs­ingar um aflandsteng­ingar Sig­mundar Davíðs, sem þá gegndi for­mennsku og emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra.

Sigurður Ingi hafði gegnt for­mennsku frá þeim tíma og stýrt flokknum í gegnum bæði rík­is­stjórn­ar­sam­starf og stjórn­ar­and­stöðu. Lilja Dögg var vara­for­maður flokks­ins í for­mann­s­tíð Sigurðar Inga.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Þetta eru sannarlega tímamót hjá framsóknarmönnum, kona sem formaður. Einu sinni var talað um „Framsóknarmadömmur“, þ.e. þegar gárungar voru að gera grín að framsóknarmönnum. Hver man ekki eftir því þegar forustumenn Framsóknarmanna voru teiknaðir sem konur / „madömmur“ í hæðni. Steingrímur Hermannsson í peysufötum, allir sem eru orðnir miðaldra muna eftir því. Ný staða er komin upp í framsóknarflokknum, gárungarnir verða finna út úr því hvernig á að þróa „Framsóknarmadömmuna“ miðað við þessi tímamót.
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Nú skulum við rifja upp öll loforð Framsóknarflokksins frá því að slagorðablætið tók að hrjá flokkinn. Mér dettur ekki í huga að óska henni til hamingju. Það er eitthvað mikið að hjá manneskju sem dettur í hug að hrósa Ásmundi Einari Daðasyni sem er einn af óhæfustu stjórnmálamönnum síðari tíma. Miðflokkinn tek ég ekki með inn í dæmið, enda algjörlega óstjórntækur og á að setja lögbann á. Við höfum ekkert að gera með Trömpista sem eru illskeyttir illvirkjar og hugsa aldrei um þjóðarhag.
    Núna hafði Framsókn smá svigrúm til að kasta af sére slyðruorðinu. Lilja var menntamálaráðherra. Ásmundur Einar var barnamálaráðherra. Hvað gerði þetta fólk fyrir börn og unglinga. Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt.. þetta fólk gat ekki einu sinni haft úrræði fyrir börn og unglinga í vanda og dettur mér ekki annað í hug en að kenna þeim ásamt fyrri ríkisstjórn um þau ömurlegu örlög sem mörg þeirra hafa hlotið.
    Ég vona að örlög Framsóknarflokksins verði þau sömu og Vinstri Grænna og einnig örlog barnanna sem ég syrgi. Ég á við flokkinn, ekki þá sem í honum eru.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár