„Hefði ekki verið nær að hafa einhvern með vit á málefninu?“

Kjartan Magn­ús­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, segir lofts­lagið „flókið fyr­ir­brigði“ og gagn­rýni á ríkj­andi vís­indi jafn­vel ekki leyfi­lega eftir fund hjá Sambandi eldri sjálf­stæð­is­manna með Frosta Sig­ur­jóns­syni, höf­undi bók­ar­innar Hitamála. Andri Snær Magnason segir flokk­inn afvega­leiða fólk.

„Hefði ekki verið nær að hafa einhvern með vit á málefninu?“
Deilt um lofts­lags­mál Frosti Sig­ur­jóns­son, höf­undur bók­ar­innar Hitamála, var milli tann­anna á Andra Snæ Magna­syni rit­höf­undi og Kjartani Magn­ús­syni borg­ar­full­trúa.

Frosti Sig­ur­jóns­son hag­fræð­ingur kynnti bók sína Hitamál á fundi Samtaka eldri sjálf­stæð­is­manna í gær. Í bók­inni er lögð áhersla á að vís­inda­menn séu ekki sam­mála um hversu stór hluti hlýn­unar jarðar skýrist af losun mann­fólks á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum.

Kjartan Magn­ús­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vakti athygli á fund­inum í færslu á Facebook í gær­kvöldi. „Lofts­lagið er flókið fyr­ir­brigði þar sem margir þættir hafa áhrif, t.d. skýja­far, haf­straumar, mengun og sól­virkni,“ skrif­aði hann. „Lofts­lags­mál eru orðin að stóru póli­tísku máli, þar sem ýmsum full­yrð­ingum er haldið á lofti og gagn­rýni virð­ist jafn­vel ekki vera leyfi­leg.“

Andri Snær Magnason rit­höf­undur svar­aði færslu Kjartans. „Hafið þið haft slíkan fund þar sem vís­inda­menn tala við eldri sjálf­stæð­is­menn og hefði ekki verið nær að hafa ein­hvern með vit á mál­efn­inu til að leið­rétta hug­myndir um „skýja­far og alls­konar“?“ skrifar Andri Snær, en Frosti hefur verið gagn­rýndur fyrir að skrifa bók um lofts­lags­mál þrátt fyrir að hafa …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það er bráðnauðsynlegt að vekja athygli á mönnum eins og Frosta sem halda fram tómri vitleysu um grafalvarleg mál.
    2
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hver er keyptur og hver er ekki keyprur ? Sannleikurinn er ekki alltaf sannur sagði ein mannvitsbrekkan. Hver á hagsmuna að gæta ?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár