Hvernig græddi Arion banki 30 milljarða?

Arion banki skil­aði rúm­lega 30 millj­arða hagn­aði, sem byggir helst á hærri vaxta­mun og vax­andi þjón­ustu­tekjum á sama tíma og kostn­aður við að reka bank­ann stendur í stað. Kvika, sem á í sam­runa­við­ræðum við Arion banka, skil­aði lægri hagn­aði en árið áður þrátt fyrir að stækka.

Hvernig græddi Arion banki 30 milljarða?
Umfram mark­mið „Starf­semi Arion sam­stæð­unnar gekk vel á árinu og var arð­semi eig­in­fjár umfram mark­mið,“ er haft eftir Benedikt Gísla­syni, banka­stjóra Arion banka, í til­kynn­ingu.

Aukinn hagn­aður Arion banka 2025 byggir á hærri vaxta­mun, vax­andi þjón­ustu­tekjum, stöð­ugum rekstr­ar­kostn­aði, bættri skil­virkni og auknum umsvifum í efna­hags­reikn­ingi. Hagnaður bank­ans nam 30,6 millj­örðum króna, sam­an­borið við 26,1 millj­arð árið 2024, sem jafn­gildir rúm­lega 17 pró­sent aukn­ingu milli ára. 

Bankinn stendur fjár­hags­lega sterkt og leggur stjórn hans til að greiddir verði 15,3 millj­arða í arð til hlut­hafa auk þess að ráð­ast í end­ur­kaup á eigin bréfum fyrir 5 millj­arða.

Arion banki birti upp­gjör 2025 í gær og sýnir það að kjarna­rekst­ur­inn er bæði stærri og hag­kvæm­ari en áður. Samhliða auknum hagn­aði hækk­aði arð­semi eigin fjár úr 13,2% í 14,9% og hagn­aður á hlut fór úr 18,31 krónu í 22,05 krónur.

Vextir og þjónustutekjur lykilbreyta

Helsti drif­kraftur auk­innar afkomu liggur í vaxta­tekjum. Hreinn vaxta­munur hækk­aði úr 3,1 pró­sent í 3,2 pró­sent …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár