Hvernig græddi Arion banki 30 milljarða?

Ari­on banki skil­aði rúm­lega 30 millj­arða hagn­aði, sem bygg­ir helst á hærri vaxtamun og vax­andi þjón­ustu­tekj­um á sama tíma og kostn­að­ur við að reka bank­ann stend­ur í stað. Kvika, sem á í samruna­við­ræð­um við Ari­on banka, skil­aði lægri hagn­aði en ár­ið áð­ur þrátt fyr­ir að stækka.

Hvernig græddi Arion banki 30 milljarða?
Umfram markmið „Starfsemi Arion samstæðunnar gekk vel á árinu og var arðsemi eiginfjár umfram markmið,“ er haft eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka, í tilkynningu.

Aukinn hagnaður Arion banka 2025 byggir á hærri vaxtamun, vaxandi þjónustutekjum, stöðugum rekstrarkostnaði, bættri skilvirkni og auknum umsvifum í efnahagsreikningi. Hagnaður bankans nam 30,6 milljörðum króna, samanborið við 26,1 milljarð árið 2024, sem jafngildir rúmlega 17 prósent aukningu milli ára. 

Bankinn stendur fjárhagslega sterkt og leggur stjórn hans til að greiddir verði 15,3 milljarða í arð til hluthafa auk þess að ráðast í endurkaup á eigin bréfum fyrir 5 milljarða.

Arion banki birti uppgjör 2025 í gær og sýnir það að kjarnareksturinn er bæði stærri og hagkvæmari en áður. Samhliða auknum hagnaði hækkaði arðsemi eigin fjár úr 13,2% í 14,9% og hagnaður á hlut fór úr 18,31 krónu í 22,05 krónur.

Vextir og þjónustutekjur lykilbreyta

Helsti drifkraftur aukinnar afkomu liggur í vaxtatekjum. Hreinn vaxtamunur hækkaði úr 3,1 prósent í 3,2 prósent – nam 52,5 milljörðum króna, samanborið við 46,3 milljarða árið 2024 – …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár