Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í Reykjavík

Ari Edwald hefur sagt skilið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og leiðir Mið­flokk­inn í Reykja­vík fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Hann er með lög­heim­ili í Portúgal en búsettur í Garðabæ.

Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í Reykjavík

Ari Edwald leiðir lista Mið­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem hann sendi frá sér á Facebook. Þar seg­ist hann hafa tekið áskorun upp­still­ing­ar­nefndar flokks­ins og telji reynslu sína úr atvinnu­lífi, félaga­sam­tökum og stjórn­málum nýt­ast vel í verk­efnum borg­ar­innar.

Ari, sem lengi hefur verið kenndur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, segir póli­tískar áherslur sínar ekki hafa breyst en að hann finni nú mestan sam­hljóm með Mið­flokknum og treysti honum best til að hrinda sínum hug­myndum í fram­kvæmd.

Ari var um tíma aðstoð­ar­maður Þor­steins Páls­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks. Þor­steinn hefur líka yfir­gefið Sjálf­stæð­is­flokk­inn en hann gekk til liðs við Viðreisn. 

Ari seg­ist hafa sterkar skoð­anir á borg­ar­málum og nefnir sér­stak­lega skipu­lags­mál, rekstur grunn­þjón­ustu og sam­göngur. Hann gagn­rýnir það sem hann kallar „ofur­þétt­ing­ar­stefnu“ og áform um Borg­ar­línu og telur að borg­ar­búar hafi ekki verið nægi­lega hafðir með í ráðum.

Í til­kynn­ing­unni segir Ari leik­skóla­kerfið …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hann er greinilega kominn í félagsskap sem hæfir.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár