„Við vildum ekki að fólk gæti keypt land“

„Fyr­ir sjö vik­um frömdu sex manns sjálfs­víg á einni helgi," seg­ir fjöl­miðla­kon­an og kyn­fræð­ing­ur­inn Ulrikke And­er­sen. Sjálf hef­ur hún þekkt 67 manns sem fram­ið hafa sjálfs­víg. Hún bend­ir á að þeg­ar fólk lifi í stöð­ugri fá­tækt eða stöð­ug­um ótta þjá­ist það af áfall­a­streitu.

„Við vildum ekki að fólk gæti keypt land“
Ulrikke Andersen með fegurðina í baksýn.

Ulrikke býður inn í stofuna þar sem hún býr i gamla bænum í Nuuk. „Afi minn byggði þetta hús,“ segir hún. „Þannig að við höfum verið hér í áttatíu ár.“

Foreldrar hennar búa á efri hæðinni. Brosandi býður hún upp á kaffi og dregur fram kaffibolla frá Íslandi. Á gólfinu dormar hundur. Ulrikke strýkur honum og segir hann vera traustan félaga. Fas hennar er eins yfirvegað og það er hlýlegt. 

Ulrikke er alin upp í Nuuk, í fjölskyldu sem hefur búið þar kynslóðum saman. Hún lýsir Grænlandi þannig að það sé ekki ein heild heldur margir heimar. „Við erum ekki ein þjóð í rauninni,“ segir hún. „Við höfum þrjú tungumál. Ekki bara mállýskur – þetta eru ólík orð, ólíkar merkingar, ólík menning.“

Þá talar hún um Vestur-, Austur- og Norður-Grænland, og það hvernig fólk skilji ekki endilega hvert annað. „Á Norður-Grænlandi líta þau stundum á okkur sem Dani. Það er …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

„Ég er barn náttúrunnar“
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég er barn nátt­úr­unn­ar“

Sé Kim Kiel­sen, for­seta græn­lenska þings­ins, flett upp á net­inu má lesa að ár­in sem hann var for­sæt­is­ráð­herra, 2014 til 2021, hafi hann stýrt mál­um sem sneru að flóknu sam­bandi Græn­lands við Banda­rík­in – og þá Pentagon – vel í höfn. Enda er hann fyrr­um sjómað­ur! En áhersla hans á vel­ferð barna stend­ur upp úr. „Börn­in okk­ar skipta mestu máli. Ekki flug­völl­ur­inn, ekki höfn­in, ekki hús­in. Alltaf börn­in, alltaf,“ seg­ir hann.
„Við getum ekki borðað peninga“
ViðtalLandið sem enginn á

„Við get­um ekki borð­að pen­inga“

„Tungu­mál­ið er sjálfs­mynd okk­ar,“ seg­ir Miite Geisler, frum­kvöð­ull og þátt­tak­andi í menn­ing­ar- og við­skipta­lífi Græn­lands. Sem barn flakk­aði hún um með veiði­mann­in­um föð­ur sín­um og mót­að­ist af nátt­úr­unni. „Við færð­um okk­ur til eft­ir veðri, veið­um og að­stæð­um,“ seg­ir hún. Og það var ekki ferða­lag held­ur lífs­bar­átta. Þessi sjálf­stæða kona er al­in upp við ást, saga henn­ar er vitn­is­burð­ur um hvernig ást efl­ir sjálf­stæði.
Bandaríkin eru stærsti ógnvaldurinn
ViðtalLandið sem enginn á

Banda­rík­in eru stærsti ógn­vald­ur­inn

Óút­reikn­an­leg fram­koma Don­alds Trump gagn­vart Græn­landi vek­ur ekki að­eins spurn­ing­ar um fram­tíð sjálf­stjórn­ar eyj­unn­ar held­ur hef­ur hún líka graf­ið und­an þeirri ör­ygg­is­skip­an sem norð­ur­slóð­ir hafa byggt á í ára­tugi. Þrátt fyr­ir að lík­ur á beinni inn­rás eða inn­limun séu enn litl­ar, seg­ir sér­fræð­ing­ur við Há­skóla Græn­lands að sú stað­reynd að þær séu ekki „núll” breyti öllu. „Það eitt að þurfa að taka slíka sviðs­mynd al­var­lega er al­var­legt í sjálfu sér,“ seg­ir dr. Rasmus Niel­sen. „Við er­um vön því að stór­veldi virði ákveð­in grunn­við­mið. Trump ger­ir það ekki.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
1
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
4
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
Ari naut skattfríðinda í Portúgal
6
Stjórnmál

Ari naut skatt­fríð­inda í Portúgal

Ari Edwald, sem skip­ar fyrsta sæti á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík, fékk stöðu sér­fræð­ings við flutn­inga lög­heim­il­is til Portúgal sem veitti hon­um ým­is skatt­fríð­indi. Hann gekk í des­em­ber frá kaup­um að íbúð í Garða­bæ fyr­ir 183 millj­ón­ir króna en flutti í gær lög­heim­ili sitt í leigu­íbúð lög­manns í mið­borg­inni. „Það er bráða­birgð­ar­ráð­stöf­un,“ seg­ir Ari.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár