Boða frjálshyggju á Íslandi í gegnum samtök tengd Koch-bræðrum

Alþjóða­sam­tök sem fjár­mögnuð eru af Charles Koch styrkja útbreiðslu frjáls­hyggju meðal ungs fólks á Íslandi. Breki Atlason, alþjóða­full­trúi Mið­flokks­ins, fer fyrir sam­tök­unum hér­lendis og sæk­ist eftir kjöri í borg­ar­stjórn. Hugveita sem Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stýrir teng­ist sama vef sam­tak­anna.

Boða frjálshyggju á Íslandi í gegnum samtök tengd Koch-bræðrum
Á Atreju ráð­stefn­unni í Róm Breki Atlason, fyrir miðju, sótti ráð­stefnu íhalds­manna í Róm í fyrra. Til hægri er Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, en báðir fara þeir fyrir félögum sem tengj­ast Atlas Network. Með þeim, frá vinstri, eru Björn Ingi Hrafns­son, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Einar Jóhannes Guðnason úr Mið­flokknum.

Banda­rísku sam­tökin Students for Liberty, sem fjár­mögnuð eru í gegnum net félaga sem banda­ríski millj­arða­mær­ing­ur­inn Charles Koch hefur styrkt, boða hug­mynda­fræði frjáls­hyggju á Íslandi. Hugveita sem Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor emeritus, er aðili að sama neti félaga. Áhrifa­fólk í Mið­flokknum verður sífellt meira áber­andi í starfi Students for Liberty, sem hingað til hefur helst verið tengt fólki úr Sjálf­stæð­is­flokknum.

Alþjóða­full­trúi Mið­flokks­ins, Breki Atlason, leiðir Students for Liberty á Íslandi, og sæk­ist nú eftir sæti á lista Mið­flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Hann hefur staðið fyrir ráð­stefnum með áhrifa­fólki af hægri væng stjórn­mál­anna, bæði inn­lendu og erlendis frá, sem ætla má að fái fjár­stuðn­ing frá alþjóða­skrif­stofu Students for Liberty miðað við opin­bera stefnu sam­tak­anna um að styðja þá við­burði sem tugir þús­unda full­trúa þeirra um heim allan standa fyrir. 

Breki svar­aði ekki spurn­ingum Heim­ild­ar­innar um málið þegar eftir því var leitað.

Millj­arða­mær­ing­ur­inn Charles Koch, sem ásamt bróður sínum, David, stofn­aði …

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Óskhyggjan byggir á trúarbrögðum, engin rök. Í veikleikanum er óskin um að verða faðir allra og geta stýrt án útskýringa ofar öllu. Ekkert ves bara einn drotnari.
    0
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Sorglegt að sjá miðaldra karla upphefja fortíð sem kynslóðir foreldra þeirra, afa
    og ömmu upplifði og bar varanlegan skaða af. Sorglegast af öllu er að þeir skuli hafa áhrif á unga pilta í sjálfsmyndarkrísu og láta þá halda að hún sé af völdum útlendinga, jafnréttis og samhygðar með þeim sem eru hinsegin. Sókn í auð og að fullnægja hvötum til alræðis er hættuleg og á hraðri uppleið í okkar samfélagi. Afsökuð með því að drengjum af íslenskum uppruna sé ekki sinn nógu vel í nútímanum. Á sama tíma sjáum við að karlmenn, sem var farið illa með á barnsaldri, þora loks að tjá sig um meðferð kerfis sem byggði á þessari fortíðarhyggju.
    7
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Dreg ekki í efa að þessi vaska sveit frómra og fordómalausra manna hitti í mark hjá mörlandanum.
    3
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    The Koch brothers, the brotherhood in Rome, ...!? "Mussoloni" must have been delighted!
    5
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Það er um margt ótrúlegt að lesa um fólk sem er að grafa um sig í þessum jarðvegi. Það þarf ekki að fara nema til fyrri hluta seinustu aldar til að átta sig á því hvaða hrylling fólk, sem grefur um sig í þessum jarðvegi, getur skapað. Oft hefur það komið fram að það er ekki vitað hvað margir voru drepnir í þeirri óreiðu sem var sköpuð. Hvort það voru 90 – 100 – 110 miljónir manna sem dóu í óreiðunni, sem frekju- valda- og græðgisfólkið skapaði. Frekju- valda- og græðgisfólkið réttlætir gerðir sýnar með einhverri barnalegri hugmyndafræði. Hugmyndafræði sem er gengið um eins og trúabrögð. Öfgar verða til og hryllingurinn veður fram.
    Hvers vegna er það sem svona endurtekning verður? Umræða hefur verið um takmarkaðan lesskilning grunnskólabarna. Ætli að það eigi við um fólk á öllum aldri, e.t.v. sérstaklega fólk í stjórnmálum. Stjórnmálafólk sé svo upptekið af sjálfum sér og „kenningunni“ og eða „trúarbrögðunum“, að það geti ekki tileinkað sér reynslu sögunnar, lesið sér til gagns. E.t.v. má finna skýringu í heimspeki . . . . að um sé að ræða smábarnasálir sem ráfi um meðvitundarlausar í sal fáfræðinnar og finnist það mikil upphefð. Upphefðin er þá að vera hluti af bræðralagi myrkursins. Er mikil upphefð í því?
    Eitt er víst að allir þurfa að vera meðvitaðir um á hvaða vegferð þeir eru. Við erum öll hluti af heildinni og þurfum að haga okkur samkvæmt því.
    11
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Er verið að undirbúa næsta hrun. Er ekki hrunið 2008 nóg. Þetta minnir mig óhugnanlega á það. Þá misstu 10 þúsund fjölskyldur heimilin sín. Hver vill endurtaka það???
    9
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Því miður ekkert sem kemur á óvart hér. Við getum líka átt von á miklum þrýstingi eða jafnvel hótunum frá Bandaríkja forseta þegar kemur næst að þingkosningum. Það sækjast sér um líkir.
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár