Stýrivextir á Íslandi og þar með vaxtakjör almennings og fyrirtækja skera sig með afgerandi hætti frá norrænum ríkjum, en einnig Evrópu í heild. Leita þarf til Hvíta-Rússlands, eða Belarús, til þess að finna hærri stýrivexti.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,25%, vegna þess að verðbólga tók aftur kipp í janúar. Með því er Ísland með fimmtu hæstu stýrivexti Evrópulanda og langhæstu stýrivexti Norðurlandanna.
Aðeins Tyrkland, Rússland, Úkraína og Hvíta-Rússland eru með hærri vexti, en tvö þessara ríkja eru í stríði og hin tvö einræðisríki og blandað einræði.
Hærri stýrivextir utan evrunnar
Af evrópskum lýðræðisríkjum sem ekki eru í stríði koma Ungverjaland og Rúmenía næst á eftir Íslandi, með 6,5% stýrivexti. Bæði ríki eru í Evrópusambandinu en eru ekki með evruna sem gjaldmiðil.
Þar á eftir koma Serbía, sem ekki er heldur með evruna, með 5,75% stýrivexti, og Moldóva, sem liggur milli Rúmeníu og Úkraínu og glímir við rússneska aðskilnaðarsinna, með 5% stýrivexti.
Af Norðurlöndunum kemur Noregur, sem ekki hefur evruna, næst á eftir Íslandi en er rétt ríflega hálfdrættingur með 4% stýrivexti. Pólverjar, sem hafa haldið sér utan evrunnar, eru með sömu stýrivexti.
Á evrusvæðinu eru stýrivextir síðan 2,15%, eða 5,35 prósentustigum lægri en á Íslandi.
Mun meiri verðbólga en á Norðurlöndunum

Þegar litið er til verðbólgu er niðurstaðan ekki ólík. Ríkin fimm með hærri stýrivexti en Ísland eru með meiri verðbólgu, en líka Rúmenía með 9,7% verðbólgu og Moldóva með 6,8% verðbólgu.
Verðbólga í Noregi er 3,2%, en í Evrópusambandinu að meðaltali 2,3%.
Í Færeyjum mælist aðeins 0,7% verðbólga, í Finnlandi, 0,2%, Svíþjóð 0,3% og í Danmörku 1,9%, rétt eins og á evrusvæðinu, en danska krónan er beintengd gengi evrunnar.
Atvinnuleysi er víða hvar meira í evruríkjunum en á Íslandi. Að meðaltali er það 5,9% í Evrópusambandinu, en hér á landi er það 4,2% og er spáð því að það vaxi í 4,7% á árinu samhliða kólnun efnahagslífsins, sem Seðlabankinn boðaði á fundi peningastefnunefndar í morgun.













































Athugasemdir (3)