Umdeilt hótel á Laugarvatni reist af útgerðarfjölskyldu úr Vestmannaeyjum

Mörg hundruð und­ir­skrifta hafa safn­ast gegn áform­um um 160 her­bergja hót­el við Laug­ar­vatn sem íbú­ar segja ógna lífs­gæð­um og líf­ríki á svæð­inu. Út­gerð­ar­fjöl­skylda úr Vest­mann­eyj­um er stærsti fjár­fest­ir­inn bak við hót­el­ið og fast­eigna­veld­ið Ber­gey sem er í ör­um vexti.

Umdeilt hótel á Laugarvatni reist af útgerðarfjölskyldu úr Vestmannaeyjum
Magnús Berg Magnússon Stjórnarformaður í fasteignafélaginu Bergey fer fyrir fjárfestingarfélagi fjölskyldu sinnar.

Rúmlega 800 manns hafa skrifað undir lista á Ísland.is þar sem mótmælt er uppbyggingu 160 herbergja hótels á þremur til fjórum hæðum við Laugarvatn. Félagið Bergey stendur að baki verkefninu en það er í eigu fjölskyldu útgerðarmanns sem rak Berg-Huginn í Vestmannaeyjum um áratuga skeið.

Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur boðað til íbúafundar á þriðjudagskvöld vegna málsins. „Byggingarnar munu skerða útsýni og aðgengi að vatninu og aukin bílaumferð mun skapa hættu þar sem á svæðinu er mikil umferð barna og fullorðinna í kringum íþróttamannvirki,“ segir í skýringu við undirskriftalistann. „Í dag myndar svæðið heild með vatninu og votlendinu sem að því liggur og er mikilvægt fyrir lífríki á Laugarvatni, einkum fugla.“

Að verkefninu stendur félagið Lognfossar ehf., en Bergey fasteignafélag á félagið að fullu samkvæmt nýjast ársreikningi. Bergey hefur verið í örum vexti undanfarin ár og á félagið fjölda eigna í miðborg Reykjavíkur og víðar. Eignir félagsins hýsa flaggskipsverslun 66° Norður við …

Kjósa
69
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    hvað er þetta. er ekki fræg og falleg bygging þarna sem væri auðveldlega hægt að breyta í hótel
    það mundi vera gaman að gista þar ekki í einhverjum blikkkassa. svo er þarna heimavist fyrir þá efnaminni.
    0
    • PB
      Peik Bjarnason skrifaði
      Ef þú ert að vísa til Héraðsskólans fyrrverandi, bustahúsið með grænu þökunum, þá er nú þegar búið að breita því í hótel. Það hefur og verið gert með mikilli virðingu fyrir sögu hússins og mjög gaman að koma þar og upplifa söguna beint í æð.
      0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Mér býður við þessu forréttindapakki. Vonandi mun græðgin éta þau upp innanfrá.
    9
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvernig var með ,,veiðigjöldin" og sjávarbyggðir ? Einn sægreifinn er í hótelbyggingu og annar sægreifi í byggingu á fyrirtækjum í ótengdum rekstri á Korputorgi ? Var það lýgi og ómerkilegheit hjá Jens Garðari og öðrum sjálfstæðismönnum ?
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár