Segir umræðu um að senda flóttafólk heim veruleikafirrta og hættulega

Jasmina Vajzovic, sem flúði sem ung­lingur til Íslands undan stríði, seg­ist hafa djúpar áhyggjur af umræðu stjórn­valda og stjórn­mála­manna um að senda flótta­fólk aftur til Palest­ínu og Sýrlands. Jens Garðar Helgason, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fagn­aði því að dóms­mála­ráð­herra vilji senda Sýr­lend­inga aftur til baka og spurði á þingi: „Hvað með Palest­ínu?“

Segir umræðu um að senda flóttafólk heim veruleikafirrta og hættulega
Flúði Jasmina Vajzovic var fimmtán ára gömul þegar hún og fjöl­skylda hennar neydd­ust til að flýja stríðs­á­stand í Bosníu og Her­segóvínu og kom til Íslands. Mynd: Heimildin

Jasmina Vajzovic, sem kom hingað til lands sem ung­lingur eftir að hafa flúið stríð, seg­ist miður sín, hrædd og áhyggju­full yfir umræðu stjórn­valda og stjórn­mála­manna um að senda fólk sem flúið hefur stríð aftur til heima­ríkja sinna, svo sem Palest­ínu og Sýrlands.

Í færslu á Facebook lýsir hún reynslu sinni af stríði og flótta og segir þá hug­mynd að fólk geti „snúið heim“ eftir stríð byggða á afneitun. „Stríð lýkur aldrei þegar vopnin þagna,“ skrifar hún og segir áfallið lifa áfram í lík­am­anum, minn­ing­unum og stöð­ugum ótta.

Hvað með Palestínu?

Þessi ummæli koma í kjöl­far nýlegra ummæla Jens Garðars Helga­sonar, vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þing­manns, sem í ræðu á þingi sagði að það væri eðli­legt og sann­gjarnt að ræða hvenær fólk sem komið hafi hingað sem flótta­fólk geti snúið aftur heim þegar aðstæður batna. Hann lagði áherslu á að umræðan um flótta­fólk og end­ur­komu tíma­bund­inna íbúa væri nauð­syn­leg …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Hvernig dettur stjórnmálafólki í hug að hægt sé að senda fólk til baka í rústir landsvæðis sem það var rekið á þegar landtökufólk flutti inn á heimili þess. Greinilegt að þau sem eru ráðandi kynslóð er illa að sér í sögu Ísraelsríkis eftir seinni heimstyrjöld.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    En á Truth Social stendur að allt er orðið stórkostlegt í Palestínu ...
    (Ath. þetta comment mitt er háð)
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er ekki bara að þetta lið fari að kroppa í kvótann minn, það er líka öll umhyggjan sem þarf að sýnaþeim.
    0
  • KKJ
    Katrin Kinga Jósefsdóttir skrifaði
    Já, það er margt óljóst með öllu hvernig málin munu þróast í Palestínu á næstunni, friður mjög brotthættur, fara þeir sem fara vilja, þetta er FÓLK sem við erum að tala hér um - sýnum mannúð !
    8
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Þeir sem halda að aðstæður í Palestíu séu komnar í lag hljóta að vera mjög heimskir. Þar er allt í rúst.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár