Heiða ætlar að vera í öðru sæti

Borg­ar­stjór­inn Heiða Björg Hilm­is­dóttir ætlar að taka annað sætið á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Hún bauð sig fram til að leiða list­ann en tap­aði fyrir Pétri Mart­eins­syni.

Heiða ætlar að vera í öðru sæti

Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri hefur ákveðið að þiggja annað sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Það er það sæti sem hún hlaut í for­vali Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík um liðna helgi en hún hafði boðið sig fram til að leiða list­ann. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér á Facebook í dag. 

Pétur Mart­eins­son sigr­aði í for­val­inu með afger­andi hætti. Harðari bar­átta var í raun um annað sætið, þar sem ein­ungis fimmtán atkvæði skildu á milli Heiðu Bjargar og Stein­unnar Gyðu- og Guð­jóns­dóttur.

Í yfir­lýs­ing­unni segir Heiða Björg að nið­ur­staðan hafi verið henni von­brigði, en hún lýsir jafn­framt miklu þakk­læti fyrir þann stuðn­ing sem hún hafi fundið fyrir í aðdrag­anda for­vals­ins, meðal ann­ars frá sjálf­boða­liðum, félögum og vinum.

Heiða sendir Pétri  ham­ingju­óskir vegna sig­urs­ins og þakkar jafn­framt með­fram­bjóð­endum sínum fyrir bar­átt­una. Hún óskar þeim sem tryggðu sér örugg sæti í fram­boðs­lista flokks­ins til ham­ingju með árang­ur­inn.

Ákvörðun hennar um að þiggja sætið var tekin eftir sam­ráð við nán­ustu sam­starfs­menn, stuðn­ings­fólk og full­trúa meiri­hlut­ans í borg­ar­stjórn. Að hennar mati er það sú leið sem geri henni kleift að halda áfram að vinna að jafn­að­ar­stefnu, jafn­rétti og öðrum póli­tískum mark­miðum Sam­fylk­ing­ar­innar.

Í yfir­lýs­ing­unni segir jafn­framt að þátt­taka í for­val­inu sýni styrk flokks­ins í Reykja­vík og að nið­ur­staðan feli í sér bæði end­ur­nýjun og reynslu innan fram­boðs­ins.

Heiða Björg stað­festir að hún muni halda áfram að gegna emb­ætti borg­ar­stjóra og starfa sem borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar út kjör­tíma­bilið, sam­hliða kosn­inga­bar­átt­unni sem fram undan er.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Garðar Garðarsson skrifaði
    Heiða Björg hefur staðið sig mjög vel, og á að halda áfram með hennar góðu áherslur á jafnréttis- og félagshyggjustefnu Samfylkingar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár