Hvað þarf til að setja Bandaríkjaforseta af?

Það er til­tölu­lega ein­falt mál að setja Banda­ríkja­for­seta af ef hann reyn­ist skyndi­lega óhæfur til að gegna emb­ætti sínu. Vandinn liggur hins vegar í því að það eru vara­for­set­inn og rík­is­stjórnin sem verða að hafa frum­kvæði að því.

Hvað þarf til að setja Bandaríkjaforseta af?
Donald Trump. Hann verður átt­ræður í sumar. Mynd: AFP

Eins og nú er komið virð­ist ekki alveg óhugs­andi að áður en síð­ara kjör­tíma­bili Trumps Banda­ríkja­for­seta lýkur í jan­úar 2029 muni stjórn­völd í Banda­ríkj­unum þurfa að horfast í augu hvort hann sé í raun hæfur til að gegna emb­ætti sínu.

Ekki af neinum póli­tískum ástæðum heldur verði spurn­ingin ein­fald­lega sú hvort honum hafi hrörnað svo mikið and­lega og/eða lík­am­lega að hann geti ekki lengur tekið með vit­rænum hætti þær ákvarð­anir sem Banda­ríkja­for­seti stendur frammi fyrir á hverjum degi.

Trump sýnir nú aukin merki ald­urs síns – hann verður átt­ræður 14. júní í sumar – og því er að minnsta kosti ástæða til að skoða þann mögu­leika. 

Engin ákvæði lengi vel

Í upp­haf­legri stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna stóð aðeins að vara­for­set­inn tæki við emb­ætti for­seta ef sá síð­ar­nefndi yrði óhæfur til að gegna því. Ekkert var hins vegar kveðið á um hver ætti að meta það …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessi hrokafulli og hégómalegi forseti hefur sýnt og sannað að hann er ekki forseti venjulegs fólks, hann er forseti tiltölulega fárrar auðmannastéttar sem með ómerkilegu lýðskumi hefur komist upp með hreint ótrúlega hluti. Nú er boðið upp á þýfi sem BNA hefur haft af Venezuela þar sem olíuauðævi þeirrar þjóðar sem þar býr á. Það er eins og ekkert megi vera í friði. Í Ghana sem áður var nefnd Gullströndin sökum mikillra auðæva þar verður innan við 2% af arðinum af gullinu eftir í því landi. Yfir 98% rennur sem arður af gullgreftrinum þarlendis í vasa amerískra fyrirtækja. Það þykir mér einkennilegt að ekkert hefur verið fjallað um þetta mikilsverða mál sem er væntanlega hvatning fyrir Donald Trump til aukinna umsvifa á Grænlandi þar sem verður að fara með fyllstu varfærni sökum þess hver þar er margt viðkvæmt. Hættan af geislavirkni getur orðið hættuleg ef þjösnaskapurinn verður mikill sem er nokkuð líklegt miðað við framgöngu þessa umdeilda forseta sem hyggst stjórna með hervaldinu og tollagleði.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár