Atvinnuleysi jókst milli ára og starfandi fækkaði

Um 9.800 ein­stak­lingar voru án atvinnu í des­em­ber. Atvinnu­leysi lækkar á milli mán­aða þegar töl­urnar hafa verið árs­tíð­ar­leið­réttar.

Atvinnuleysi jókst milli ára og starfandi fækkaði

Atvinnu­leysi jókst og hlut­fall starf­andi lækk­aði á milli des­em­ber­mán­aða 2024 og 2025, sam­kvæmt nýrri vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hagstofu Íslands. Atvinnu­leysi jókst um 0,5 pró­sentu­stig, á sama tíma og hlut­fall starf­andi lækk­aði um 1,1 pró­sentu­stig og atvinnu­þátt­taka minnk­aði um 0,7 pró­sentu­stig.

Atvinnu­leysi mæld­ist 4,2 pró­sent í des­em­ber 2025 meðal fólks á aldr­inum 16 til 74 ára. Um 9.800 ein­stak­lingar voru þá án atvinnu. Hlutfall starf­andi var 76,0 pró­sent, sem sam­svarar tæp­lega 221.900 manns, og atvinnu­þátt­taka var 79,3 pró­sent eða um 231.700 manns á vinnu­mark­aði.

Þegar töl­urnar eru árs­tíða­leið­réttar mæld­ist atvinnu­leysi 4,5 pró­sent í des­em­ber. Árs­tíða­leið­rétt hlut­fall starf­andi var 76,9 pró­sent og atvinnu­þátt­taka 80,5 pró­sent.

Á milli nóv­em­ber og des­em­ber sýna árs­tíða­leið­réttar tölur þó lækkun í atvinnu­leysi, sem minnk­aði um 2,7 pró­sentu­stig. Hlutfall starf­andi jókst um 0,3 pró­sentu­stig á sama tíma en atvinnu­þátt­taka dróst saman um 1,9 pró­sentu­stig.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár