Össur kallar Sigmar „mannfjanda“ í deilu um utanríkisstefnu Íslands

Deilt er um það í íslenskum stjórn­málum hvort Íslandi eigi að halla sér að Evr­ópu­sam­band­inu eða Banda­ríkj­unum. Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, reidd­ist þing­manni Við­reisnar vegna meintra ald­urs­for­dóma í ummælum um Ólaf Ragnar Grímsson, sem bendir vestur um haf.

Össur kallar Sigmar „mannfjanda“ í deilu um utanríkisstefnu Íslands
Sigmar á þingi Þing­maður Við­reisnar, sem styður aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, gagn­rýndi Ólaf Ragnar Grímsson óbeint eftir við­tal í Silfrinu, þar sem for­set­inn fyrr­ver­andi vís­aði Íslend­ingum vestur um haf frekar en til Brussel í yfir­stand­andi svipti­vindum í heims­málum. Mynd: Bára Huld Beck

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, kallar Sigmar Guð­munds­son, þing­mann Við­reisnar, „mann­fjanda“ í við­brögðum hans við færslu þar sem Sigmar gerir lítið úr fyrr­ver­andi stjórn­mála­mönnum með áherslu á sam­band við Banda­ríkin.

Eftir við­tal í Silfrinu á RÚV við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seta Íslands, sem lagði til að íslenska utan­rík­is­þjón­ustan fund­aði tvisvar í Washington fyrir hvern fund í Brussel, sagði Sigmar: 

„Það er tals­vert fram­boð af öldnum höfð­ingjum sem horfa vestur um haf með aðdáun. Þeir eru sem betur fer allir fyrr­ver­andi hitt og þetta.“ 

Í við­tal­inu í Silfrinu hrós­aði Ólafur Ragnar sér­stak­lega Össuri Skarp­héð­ins­syni, sem er fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og sagði hann hafa unnið „merkasta plagg sem skrifað hefur verið á Vest­ur­löndum á síð­ari árum um sam­starf við Grænland“, í skýrslu sem skilað var til Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra fyrir fimm árum. Ólafur Ragnar kvaðst svo sam­mála mati Össurar um að Ísland væri í ágætri stöðu, þrátt fyrir að Banda­ríkin virtu ekki lengur full­veldi þegar kemur að næsta nágranna­ríki.

Sami Össur reidd­ist Sigmari og sak­aði hann um ald­urs­for­dóma gagn­vart Ólafi Ragnari og hugs­an­lega fleirum, en Ólafur Ragnar er 82 ára, Össur 72 ára og Sigmar 56 ára.

„Kanntu ekki mannasiði, mann­fjandi?! Ég og þú kunnum að vera ann­arrar skoð­unar en Ólafur Ragnar Grímsson á Evr­ópu­sam­band­inu en skoð­anir hans á því, Banda­ríkj­unum og eftir atvikum öðrum stór­veldum, eru fullrar virð­ingar verðar, og þú eða þið í Viðreisn vinnið enga slagi, allra síst um Evrópu, með því að tala niður til fólks,“ sagði Össur. Hann vitn­aði síðan til færslu Björns Inga Hrafns­sonar, aðstoð­ar­manns Sigmunds Davíð Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, um gagn­rýni Ólafs Ragnars á utan­rík­is­stefnu rík­is­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins, þar sem Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, er utan­rík­is­ráð­herra.

„Utan­rík­is­stefna Við­reisnar fékk fall­ein­kunn hjá ÓRG í Silfrinu í kvöld, hann pakk­aði því nokkuð snyrti­lega saman. Við­brögðin við þeim skelli eru fremur súr,“ sagði Björn Ingi á X. Undir þetta virð­ist Össur taka.

„Björn Ingi las orð hans úr Silfrinu um aðferða­fræði hár­rétt, og margir fleiri eru sömu skoð­unar, bara svo þú vitir það. Fyrir hönd allra „aldr­aðra höfð­ingja“ og „fyrr­ver­andi" segi ég bara: Betur að Viðreisn hefði ein­hverja slíka í sínum röðum. Eitt er að klúðra niður fylg­inu en mér sýn­ist að þið séuð á sömu leið með Evr­ópu­málin. Sparaðu þér svo ald­urs­for­dóma næst þegar þú sest við skjá­inn, sem þú út af fyrir sig mættir alveg sleppa.“

Rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna, sem Össur sat í sem utan­rík­is­ráð­herra, sótti um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu 17. júlí 2009, sem dregin var til baka af næstu rík­is­stjórn. 

Í þetta sinn ætlar rík­is­stjórnin sér að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu áður en sótt verður um aðild, og er hún fyr­ir­huguð vorið 2027.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár