Kvarnast úr borgarstjórnarhópi Sjálfstæðisflokks

Helgi Áss Grét­ars­son, vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, hefur gengið til liðs við Mið­flokk­inn.

Kvarnast úr borgarstjórnarhópi Sjálfstæðisflokks

Helgi Áss Grét­ars­son, vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til­kynnti í morgun að hann sé að yfir­gefa flokk­inn og ganga til liðs við Mið­flokk­inn. Þetta til­kynnti hann í útvarps­þætt­inum Bítinu á Bylgj­unni. „Fyrir því eru marg­vís­legar ástæður,“ sagði hann og bætti strax við að honum þætti vænt um Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Helgi sagði ákvörð­un­ina hafa mót­ast af djúp­stæðum póli­tískum ágrein­ingi um stefnu innan borg­ar­stjórnar, þar sem hann hafi ekki fundið sig lengur í stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í nokkrum lyk­il­málum.

„Mið­flokk­ur­inn er í sókn í skoð­ana­könn­unum“

„Það eru nokkur grund­vall­ar­at­riði þar sem ég tel að flokk­ur­inn hafi farið af leið, bæði í borg­ar­málum og í lands­málum,“ sagði hann.

Á meðal þess sem Helgi nefndi var ósam­komu­lag um sam­göngu­mál, þar á meðal hug­myndir um borg­ar­línu­verk­efni, sem og óánægja með umræðu og áherslur innan borg­ar­stjórnar sem hann taldi eyða tíma í minni háttar mál frekar en þau stóru.

…

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Ekki kemur þetta á óvart. Skrif Helga sverja sig í ætt við hægri öfgastefnu. Það dregur sig saman sem dámlíkast er, segir máltækið.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár