Trump virðist taka yfir Grænland og Kanada á samfélagsmiðlamyndum

Donald Trump birti myndir sem gefa til kynna banda­ríska ásælni í Grænland og Kanada. Í færslu á Truth Social lýsir hann land­inu lyk­il­at­riði í heims­ör­yggi og segir ekki verða snúið til baka og birtir sam­hliða sam­skipti við leið­toga NATO og for­seta Frakk­lands..

Trump virðist taka yfir Grænland og Kanada á samfélagsmiðlamyndum
Banda­rískt yfir­ráða­svæði Myndina birti Trump á eigin sam­fé­lags­miðli. Á henni sést hann með vara­for­seta sínum JD Vance og utan­rík­is­ráð­herr­anum Marko Rubio stinga niður fána á Græn­landi, við hlið skilt­ist sem á stendur „Grænland - banda­rískt yfir­ráða­svæði stofnað 2026“. Mynd: Trump

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti birti í morgun færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Truth Social þar sem hann virð­ist stinga niður fána Banda­ríkj­anna á Græn­landi. Á annarri mynd, sem hann birti um svipað leyti, sést hann lesa yfir evr­ópskum leið­togum á skrif­stofu sinni fyrir framan kort sem gefur til kynna að Kanada til­heyri Banda­ríkj­unum.

Í færslu á Truth Social segir hann Grænland vera „óum­flýj­an­legt fyrir þjóðar- og heims­ör­yggi“. Trump seg­ist hafa átt „mjög gott sím­tal“ við Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, NATO, þar sem Grænland hafi verið til umræðu. Hann seg­ist hafa sam­þykkt að funda með ýmsum í Davos í Sviss og ítrekar að ekki verði „snúið til baka“ í Græn­lands­mál­inu.

Banda­ríski fán­innÁ mynd­inni sem Trump deildi á sam­fé­lags­miðl­inum Truth Social sést hann messa yfir evr­ópskum leið­togum fyrir framan kort af Ameríku, þar sem Kanada er sveipað banda­rískum fána.

„Grænland er óum­flýj­an­legt fyrir þjóðar- og heims­ör­yggi,“ skrifar Trump og bætir við að Banda­ríkin séu „eina valdið“ sem geti tryggt frið í heim­inum, meðal ann­ars vegna upp­bygg­ingar banda­ríska hers­ins á fyrra kjör­tíma­bili hans, sem hann segir halda áfram með auknum hraða.

Á mynd­inni sem Trump birtir sést hann standa á grófu, norð­lægu lands­lagi með banda­ríska fán­ann á lofti. Við hlið hans er skilti þar sem stendur „Greenland – US Ter­ritory – Est. 2026“. Fram­setn­ing Trumps gengur jafn­vel enn lengra en áður hefur sést í umræðu um Grænland og ásælni Banda­ríkja­for­seta í landið.

Trump lauk færslu sinni með því að segja að friður í heim­inum yrði tryggður „með styrk“.

For­set­inn birti líka sam­skipti sín við bæði Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra NATO, og Emmanuel Macron, for­seta Frakk­lands. „Við erum algjör­lega sam­mála um Sýrland. Við getum gert frá­bæra hluti gagn­vart Íran. Ég skil ekki hvað þú ert að gera varð­andi Grænland,“ skrifar Macron í texta­skila­boðum til Trumps.

Sá franski býðst svo til að setja upp fund með G7-ríkj­unum í Davos í París á fimmtu­dag, þangað sem hann getur boðið bæði Úkra­ínu­mönnum, Dönum, Sýr­lend­ingum og Rússum. Svo vill hann líka bjóða Trump í kvöld­mat.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Allt sem Trump segir og gerir er til þess ætlað að heilla kjósendur hans í Bandaríkjunum. Hann er að undirbúa jarðvegin fyrir kosningu til forseta annað kjörtímabil og þá þarf hann að hafa sem flesta Bandaríkjamenn með sér í liði. Til vara mun hann nota sömu aðferð og Pútín notaði að láta kjósa lepp til valda á meðan stjórnrskránni er breitt svo hann sjálfur geti boðið sig fram.
    Taktíkin hans er að skapa glundroða og síðan leysa úr glundroðanum og hæla svo sjálfum sér fyrir það þannig að kjósendur hans taki eftir því og heillist enn meira af honum.
    0
  • BJ
    Benedikt Jónsson skrifaði
    Maðurinn sem vill ólmur fá friðarverðlaun er mesta ógn við frið í heiminum í dag.
    1
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Trump er að verða hættulegri heimsfriðnum en Pútín.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár