Hvaða hljóðfæri er þetta? – og 16 aðrar spurningar

Hvaða hljóðfæri er þetta? – og 16 aðrar spurningar
Mynd 1 Hvað heitir hljóð­færið sem Armand Djikoloum heldur hér á?
Mynd 2Hér má sjá efri hluta and­lits­ins á ... hvaða mann­eskju?
  1. Hvaða litur er (nán­ast alltaf) efstur í regn­boga?
  2. Hvaða hátt­setti stjórn­mála­maður í Banda­ríkj­unum hefur skrifað bók um upp­eldi sitt meðal fátæks sveita­fólks í Appalachia-fjöllum?
  3. Heiti hvaða tafl­manns á ensku er komið frá lat­neska orð­inu yfir fót?
  4. Fót­bolta­þjálf­ar­inn Amorim var nýlega rek­inn frá enska fót­boltalið­inu Manchester United. Hverrar þjóðar er Amorim?
  5. Þing­maður á Alþingi Íslend­inga fædd­ist 1959, vann ýmis störf framan af ævi en dreif sig í mennta­skóla kom­inn á fer­tugs­aldur, kláraði MH 1999, lærði svo stjórn­mála­fræði um skeið og lauk lög­fræði­prófi frá HÍ 2014. Settist svo á þing fáum árum síðar. Þetta er ... hver?
  6. Ein og sama þjóðin hefur oft­ast unnið gullið á Ólymp­íu­leikum og HM karla í hand­bolta. Hvaða þjóð er það?
  7. Hvaða líf­færi er stærsti, já langstærsti kirtill­inn í manns­lík­anum?
  8. Hvar er Maríana-gjáin? Svarið þarf aldrei þessu vant ekki að vera hár­ná­kvæmt.
  9. Árið 1939 stofn­uðu tveir karlar, sem köll­uðu sig Bill W. og Dr. Bob, sam­tök sem síðan hafa látið veru­lega að sér kveða en þó oft­ast í kyrr­þey. Hvaða sam­tök eru það?
  10. Hvaða kvik­mynda­leik­stjóri gerði mynd­irnar Jaws, Schindler's List og Jurassic Park?
  11. Vin­sældir Lauf­eyjar Lin aukast sífellt um ver­öld víða. Í fyrra kom út þriðja stúd­íó­platan hennar og nefn­ist ... hvað?
  12. Fyrsta stúd­íó­plata hennar kom hins vegar út árið 2022. Hún heitir ... hvað?
  13. Hvaða vítamín fær maður aðal­lega úr sól­ar­ljósi?
  14. Dýra­teg­undir tvær nefn­ast á lat­ínu Pediculus humanus humanus og Pediculus humanus capitis. Eins og sjá má af milli­nafni þeirra, „humanus“, eru dýrin afar háð mann­inum. Fæstir gera nokkurn grein­ar­mun á þessum dýrum og kalla báðar teg­undir ein­fald­lega ... hvað?
  15. Pétur Mart­eins­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, var lengi atvinnu­maður í fót­bolta. Hann lék með liðum í Noregi og Svíþjóð og svo einu liði á Englandi. Hvaða lið var það?

Svör við mynda­spurn­ingum: 1.  Armand heldur á óbó­inu sínu.   2. And­lits­hlut­inn sýnir Jónas Hall­gríms­son.
Svör við almennum spurn­ingum: 1.  Rauður.  —  2.  J.D. Vance vara­for­seti.  —  3.  Peðið.  —  4.  Portú­galskur.  —  5.  Inga Sæland.  —  6.  Frakkar.  —  7.  Lifrin.  —  8.  Í sjónum.  Þar er mesta dýpi í heimi.  —  9.  AA.  —  10.  Spi­el­berg.  —  11.  A Matter of Time.  —  12.  Everyt­hing I Know About Love.  —  13.  D-vítamín.  —  14.  Lús.  —  15.  Stoke City.
Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár