Donald Trump í gær­kvöldi Banda­ríkja­for­seti lætur sér í léttu rúmi liggja að áform hans um yfir­töku og inn­limun á Græn­landi hafi áhrif á varn­ar­banda­lagið NATO og að allir flokkar á Græn­landi hafi and­mælt hót­unum hans. Hér gengur hann um borð í þot­una Marine One á Joint Base Andrews í Maryland í gær­kvöldi. Mynd: AFP

Trump er sama þótt yfirtaka á Grænlandi hafi áhrif á NATO

„Með einum eða öðrum hætti ætlum við að fá Grænland,“ sagði Banda­ríkja­for­seti í nótt.

Donald Trump for­seti sagði á sunnu­dag að Banda­ríkin myndu taka Grænland „með einum eða öðrum hætti“ og var­aði við því að Rússland og Kína myndu „taka yfir“ ef Banda­ríkin aðhefð­ist ekki, þrátt fyrir að Grænland falli undir 5. grein Atl­ants­hafs­sátt­mál­ans um að árás á eitt ríki jafn­gildi árás á þau öll.

Trump segir að yfir­ráð yfir auð­linda­ríka sjálf­stjórn­ar­svæð­inu séu mik­il­væg fyrir þjóðar­ör­yggi Banda­ríkj­anna í ljósi auk­innar hern­að­ar­um­svifa Rússa og Kínverja á norð­ur­slóðum.

„Ef við tökum ekki Grænland munu Rússland eða Kína gera það, og ég ætla ekki að láta það ger­ast,“ sagði Trump við frétta­menn um borð í for­seta­flug­vél­inni Air Force One, þrátt fyrir að hvor­ugt landið hafi gert til­kall til þess­arar stærstu eyju heims.

Trump sagð­ist vera opinn fyrir því að gera samn­ing við danska sjálf­stjórn­ar­svæðið „en með einum eða öðrum hætti ætlum við að fá Grænland“.

Danmörk og önnur evr­ópsk banda­lags­ríki hafa lýst yfir hneykslun á hót­unum Trumps vegna eyj­unnar, sem gegnir hern­að­ar­lega mik­il­vægu hlut­verki milli Norður-Ameríku og norð­ur­slóða, og þar sem Banda­ríkin hafa haft her­stöð frá síð­ari heims­styrj­öld.

Grænland var dönsk nýlenda til árs­ins 1953, fékk heima­stjórn 26 árum síðar og íhugar að losa um tengsl sín við Danmörku á end­anum.

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti íbúa og stjórn­mála­flokka hafa sagt að þeir vilji ekki vera undir yfir­ráðum Banda­ríkj­anna og krefj­ast þess að Græn­lend­ingar ákveði sína eigin fram­tíð – sjón­ar­mið sem Trump hefur stöðugt véfengt.

„Grænland ætti að gera samn­ing­inn, því Grænland vill ekki sjá Rússland eða Kína taka yfir,“ var­aði Trump við og gerði gys að vörnum lands­ins.

„Þið vitið hverjar varnir þeirra eru, tveir hunda­sleðar,“ sagði hann, á meðan Rússland og Kína hafa „tor­færu­báta og kaf­báta út um allt.“

For­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur var­aði við því í síð­ustu viku að hvers kyns til­raun Banda­ríkj­anna til að taka Grænland með valdi myndi eyði­leggja 80 ára öryggis­tengsl yfir Atl­ants­hafið.

Trump vís­aði þeim ummælum á bug og sagði: „Ef það hefur áhrif á NATO, þá hefur það áhrif á NATO. En þið vitið, (Grænland) þarf miklu meira á okkur að halda en við á þeim.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    AUÐVITAÐ GULLIÐ HVAÐ ANNAÐ
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Trump has cancelled over 66 US memberships in international organizations, incl. UN agencies and int'l contracts! He would love to get rid of NATO and blame others. As for Europe he'd be only interested to control the EU if he can't dissolve it! The US and NATO presence in Iceland is a high risk just as is the Ramstein Base in Germany and other bases in Europe!
    Why doesn't Europe strive to gain or regain its sovereignty!
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessi núverandi forseti BNA virðist vera með sama hugarfar og þröngsýnustu og verstu einræðisherrar sögunnar. Hann telur sér allar götur færar með hergagnaframleiðendur að baki sér. Fyrir honum eru mannréttindi, sjálfsákvörðunarrréttur þjóða eða einstaklingsins einskis virði nema það varði hann sjálfan og þröngsýni.
    Það er hámark sýndarmennskunnar að breyta hluta Hvíta hæussins í risastóran danssal þar sem unnt verður í framtíðinni að dansa kringum ameríska gullkálfinn sem auðvitað er enginn annar en hann sjálfur.
    Varla verður lagkúrunni náð lengra. Þessi maður hefði aldrei átt að vera valinn forystusauður heillrar þjóðar. Bandaríkjamenn hafa glutrað niður sem forystuþjóð á vegum vísinda, mannréttinda og lýðræðis. Háskólasamfélagið á í vörn vegna þessa manns sem er á góðri leið að lama allt heilbrigt samfélag.
    7
    • Kristjana Magnusdottir skrifaði
      Mikið hvað heimurinn er orðinn ruglaður í dag!
      0
  • HR
    Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
    BNA getur verið með eins mikinn viðbúnað og þau vilja á Grænlandi svo ídíótinn er að segja að þeirra eigin herstöðvar sem eru þarna núna og það sem þau gætu sett upp í viðbót séu tveir hundasleðar.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár