Ragnar Þór kemur inn sem ráðherra og Inga færir sig um set

Inga Sæland færir sig um ráðu­neyti og Ragnar Þór Ing­ólfs­son kemur nýr inn í rík­is­stjórn.

Ragnar Þór kemur inn sem ráðherra og Inga færir sig um set
Ráðherra Ragnar Þór lét af emb­ætti sem for­maður VR til að taka sæti á Alþingi. Hann tekur nú við ráð­herra­emb­ætti á sínu fyrsta kjör­tíma­bili sem þing­maður. Mynd: Eyþór Árnason

Inga Sæland, for­maður flokks fólks­ins, ætlar sjálf að taka við emb­ætti af Guðmundi Inga Krist­ins­syni sem fyrr í kvöld til­kynnti um afsögn sína sem mennta- og barna­mála­ráð­herra. Inga situr þó ekki í tveimur ráðu­neytum og verður Ragnar Þór Ing­ólfs­son, þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins, nýr félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. 

„Ég hef ákveðið að færa mig um set og taka við emb­ætti mennta- og barna­mála­ráð­herra,“ segir Inga í til­kynn­ingu sinni, sem hún birtir á Facebook, þar sem hún fer yfir breytta ráð­herra­skipan. „Miklu hefur verið áorkað í félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neyt­inu á fyrsta ári rík­is­stjórn­ar­innar og þar eru enn fleiri þjóð­þrifa­mál í far­vatn­inu. Ég kveð það ráðu­neyti því með trega enda mál­efni þess mér mjög kær.“

Í Facebook-til­kynn­ingu sinni þakkar Inga Guðmundi Inga fyrir sam­starfið. „Hann hefur verið mín stoð og stytta og óþreyt­andi í bar­átt­unni fyrir bættum kjörum þeirra sem minnst mega sín í þjóð­fé­lag­inu,“ segir hún. Guð­mundur Ingi er vara­for­maður Flokks fólks­ins og hefur setið í þing­flokki með Ingu lengst allra.

Ekki hefur náðst í Ragnar Þór í kvöld vegna ráð­herrakap­als­ins.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár