Guðmundur Ingi segir af sér sem ráðherra

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, mennta- og barna­mála­ráð­herra, ætlar að segja af sér ráð­herra­emb­ætti. Hann er í veik­inda­leyfi og mun snúa aftur sem óbreyttur þing­maður þegar hann hefur náð heilsu á ný.

Guðmundur Ingi segir af sér sem ráðherra

„Að vand­lega ígrund­uðu máli hef ég ákveðið að segja af mér emb­ætti mennta- og barna­mála­ráð­herra vegna veik­inda,“ segir Guð­mundur Ingi Krist­ins­son í til­kynn­ingu. Hann und­ir­gekkst hjarta­að­gerð fyrir skömmu og er nú í end­ur­hæf­ingu eftir hana.

Guð­mundur segir í til­kynn­ing­unni, sem hann birtir á Facebook, að það hafi verið heiður að gegna emb­ætti mennta- og barna­mála­ráð­herra. „Ég styð rík­is­stjórn­ina heils­hugar í þeim góðu verk­efnum sem fram undan eru á næstu miss­erum,“ segir hann í ann­ars stuttri yfir­lýs­ingu.

Í til­kynn­ing­unni seg­ist hann ætla að ein­beita sér að því að ná bata og svo snúa aftur sem óbreyttur þing­maður í þinglið Flokks fólks­ins, „þegar heilsa leyfir“.

Guð­mundur Ingi er annar þing­maður Flokks fólks­ins til að segja af sér þessu til­tekna ráð­herra­emb­ætti. Sjálfur tók hann við emb­ætt­inu þegar Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­kona flokks­ins, sagði af sér í kjöl­far frétta­flutn­ings RÚV af því að hún hafi eign­ast barn með tán­ingi sem hún hafði kynnst í kristnum söfn­uðu sem þau til­heyrðu þegar hún var sjálf 22 ára, og af við­brögðum hennar við því að amma barns­ins vildi eiga fund með for­sæt­is­ráð­herra til að upp­lýsa hana um málið. 

Óvíst er hver tekur við emb­ætt­inu en Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins og félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur synnt því í fjar­veru Guð­mundar Inga. Hún hefur líka sinnt emb­ætti inn­við­a­ráð­herra í feðra­or­lofi Eyjólfs Ármanns­sonar. 

ÞögulInga hefur ekk­ert viljað segja hvort og þá hvaða breyt­ingar komi til greina á ráð­herra­liði Flokks fólks­ins.

Pískrað hafði verið um að kynna ætti breytta ráð­herra­skipan Flokks fólks­ins á rík­is­stjórn­ar­fundi á morgun. Óljóst var þó hvort til stæði að skipta Guðmundi Inga út tíma­bundið eða var­an­lega. Hann hefur nú sjálfur til­kynnt um var­an­legt brott­hvarf sitt úr ráðu­neyt­inu. Inga hefur hins vegar ekk­ert viljað gefa uppi um hver stígur inn í rík­is­stjórn í hans stað. 

Auk ráð­herr­anna núver­andi og fyrr­ver­andi eru í þing­liði flokks­ins þau Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir, fyrr­ver­andi borg­arft­ull­rúi, Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, sem er jafn­framt vara­for­maður þing­flokks­ins, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður þing­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður VR, Sigurður Helgi Pálmason og Sigurjón Þórð­ar­son. 

Ingu er líka frjálst að leita út fyrir þing­flokk­inn eftir ráð­herra, líkt og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar og utan­rík­is­ráð­herra, þegar hún gerði Daði Már Krist­ó­fers­son, vara­for­mann Við­reisnar, að fjár­mála­ráð­herra utan þings. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár