Íslendingar verja nær 8 prósentum tekna í jólagjafir – meira en Danir, minna en Norðmenn

Noregur stendur upp úr í sam­an­burð­inum en Danir, sem hafa hæstar með­al­ráð­stöf­un­ar­tekjur, verja lægstu hlut­falli í jóla­gjafir af Norð­ur­landa­þjóð­unum.

Íslendingar verja nær 8 prósentum tekna í jólagjafir – meira en Danir, minna en Norðmenn
Hátt í alþjóð­legum sam­an­burði Þó að hlut­fall jóla­gjafa­kaupa af tekjum sé lægra á Íslandi en hjá Norð­mönnum og Svíum er það engu að síður hátt í alþjóð­legum sam­an­burði. Hátt verð­lag hér á landi vegur þungt í þeim útreikn­ingum. Mynd: Golli

Íslensk heim­ili verja nær átta pró­sentum af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í jóla­gjafir og eru næstneðst á lista yfir hvað Norð­ur­landa­þjóð­irnar eyða hlut­falls­lega í gjafir. Þetta kemur fram í nýrri sam­an­tekt frá Nor­dregio, sem er alþjóð­leg rann­sókn­ar­stofnun stofnuð af Norrænu ráð­herra­nefnd­inni.

Samkvæmt sam­an­tekt­inni verja Íslend­ingar að jafn­aði 7,91 pró­sentum af ráð­stöf­un­ar­tekjum heim­ila í des­em­ber í jóla­gjafir. Það er minna en í Noregi og Svíþjóð, en meira en í Danmörku – þrátt fyrir að Danir hafi hæstar ráð­stöf­un­ar­tekjur á Norð­ur­löndum.

Norðmenn eyða mest og Danir minnst

Noregur stendur upp úr í sam­an­burð­inum. Þar fara að jafn­aði 10,95 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum í jóla­gjafir, sem er hæsta hlut­fallið á Norð­ur­löndum. Svíar fylgja í kjöl­farið með 8,57 pró­sent og Finnar með 8,25 pró­sent.

Danir, sem hafa hæstar með­al­ráð­stöf­un­ar­tekjur, verja hins vegar aðeins 7,56 pró­sentum í jóla­gjafir, því minnsta af Norð­ur­landa­þjóð­unum. Nið­ur­stöð­urnar benda því til þess að tekju­hæð ein og sér skýri …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það virðast allir gleyma sér fyrir blessaðan náunga kærleikann fyrir jólin svo segir fólk við hvort annað það eru nú einu sinni jólin ekki satt vinur minn
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár