Hluti auglýsingatekna RÚV renni til annarra miðla

Logi Ein­ars­son, menn­ingar,- nýsköp­unar og háskóla­ráð­herra, hefur til­kynnt að meðal aðgerða sem hann hyggst ráð­ast í á sviði fjöl­miðla sé að einka­reknir fjöl­miðlar fái hluta af aug­lýs­inga­tekjum RÚV. Hann hyggst einnig hækka almennan stuðn­ing við fjöl­miðla.

Hluti auglýsingatekna RÚV renni til annarra miðla

Logi Ein­ars­son, menn­ingar,- nýsköp­unar og háskóla­ráð­herra, til­kynnti í dag aðgerða­á­ætlun í mál­efnum fjöl­miðla.

Meðal þeirra tutt­ugu aðgerða sem hann hyggst leggj­ast í eru að um 12 pró­sent hluti aug­lýs­inga­tekna RÚV verði lát­inn renna til ann­arra fjöl­miðla. Þá verði allt aug­lýs­ingafé umfram til­tekið hámark látið renna óskipt í sama stuðn­ings­um­hverfi. Er þetta til við­bótar við það fjár­magn sem þegar rennur til einka­rek­inna fjöl­miðla. 

Sagði Logi að þessi leið væri talin best til þess fallin að tryggja að aug­lýs­ingafé rynni ekki úr landi og skil­aði sér til ann­arra fjöl­miðla. 

Enn fremur hefur ráðu­neyti Loga og fjár­mála­ráðu­neytið ákveðið að hefja vinnu um hvernig megi létta af rekstri RÚV kostn­aði vegna eldri líf­eyr­is­skuld­bind­inga. 

Hvati til að sinna almannaþjónustuhlutverki

Meðal ann­arra aðgerða eru að almennur stuðn­ingur við fjöl­miðla verði hækk­aður umtals­vert og fyr­ir­sjá­an­leiki auk­inn. Frumvarp til laga um þetta verði lagt fram á vor­þingi 2026 og komi strax til fram­kvæmda. 

Enn fremur verði stuðn­ingur auk­inn við fjöl­miðla sem sinni almanna­þjón­ustu­hlut­verki, til dæmis með því að stunda fjöl­breyttan, dag­legan frétta­flutn­ing sem nær yfir landið allt og hefur ákveð­inn fjölda blaða­manna í vinnu. „Þetta er ekki til að styðja bara við þá sem þegar gera þetta, heldur sem hvati til ann­arra að stefna í þessa átt,“ sagði Logi. 

Til að sporna við þeim aug­lýs­inga­tekjum sem renna í æ rík­ari mæli til alþjóð­legra tækni­fyr­ir­tækja svo sem sam­fé­lags­miðla seg­ist Logi hafa litið til aðgerða sem önnur ríki hafa gripið til. Þetta sé þó flókið að takast á við. Því verði þó beint til ráðu­neyta og und­ir­stofn­ana rík­is­ins að beina aug­lýs­inga­kaupum sínum til fjöl­miðla, frekar en sam­fé­lags­miðla. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár