Lækka laun jöklaleiðsögumanna um fjórðung vegna reiknivillu

Hópur leið­sögu­manna hjá Icelandia fékk bréf um að samn­ingum þeirra yrði sagt upp og þeim boð­inn nýr á lægri launum. Fram­kvæmda­stjóri segir þetta hafa verið villu sem þurfti að leið­rétta og að starfs­menn sýni þessu skiln­ing. Fyr­ir­tækið er í sam­runa­við­ræðum og stefnir á skrán­ingu á markað.

Lækka laun jöklaleiðsögumanna um fjórðung vegna reiknivillu
Björn Ragn­ars­son Fram­kvæmda­stjóri Icelandia segir að of há laun starfs­manna verði greidd út upp­sagn­ar­frest þeirra áður en nýir samn­ingar taki við. Mynd: Iris Dogg Einarsdottir

Áannan tug jökla­leið­sögu­manna hjá Icelandia sem starfa á Sól­heima­jökli eða í Skafta­felli fékk upp­sagn­ar­bréf í lok nóv­em­ber. Fyr­ir­tækið bauð þeim nýja samn­inga á launum sem eru um fjórð­ungi lægri og villa í útreikn­ingi sögð ástæða launa­lækk­an­anna. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar ríkir mikil óánægja með nýju samn­ing­ana hjá leið­sögu­mönnum sem upp­lifa sig sem lág­launa­fólk þrátt fyrir að þurfa að upp­fylla nauð­syn­legar kröfur og hafa sér­þekk­ingu til þess að sinna starfi sínu vel. Þeir hafi leitað til stétt­ar­fé­lags en fengið þau svör að Icelandia sé heim­ilt að gera hlut­ina með þessum hætti.

Björn Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Icelandia, segir málið snúa að tak­mörk­uðum hópi leið­sögu­manna. „Það upp­götv­að­ist í haust ákveðin villa í launa­flokki hjá þessu fólki þannig að þau voru með ofgreidd laun,“ segir hann. „Við þurftum að leið­rétta það og til þess að það stand­ist alla skoðun þurfti að segja ráðn­ing­ar­samn­ingnum upp og gera nýjan.“

„Auðvitað voru ein­hverjir sem voru ekk­ert …
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eiríkur Barkarson skrifaði
    Smá leiðrétting... Icelandia á ekki lengur bílaleigu.. seldu hana í lok síðasta árs til Okka bílaleigu, sem er í eigu Toyota.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár