Þingkosningarnar kostuðu Sjálfstæðisflokkinn 174 milljónir

Hátt í hund­rað millj­óna króna tap var á rekstri Sjálf­stæð­is­flokks­ins á síð­asta ári, þrátt fyrir 410 millj­óna króna tekjur.

Þingkosningarnar kostuðu Sjálfstæðisflokkinn 174 milljónir

Tap upp á 97 millj­ónir króna varð á rekstri Sjálf­stæð­is­flokks­ins á síð­asta ári. Þyngst vegur kostn­aður vegna próf­kjörs og kosn­inga upp á 174 millj­ónir. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi flokks­ins.

Boðað var nokkuð óvænt til kosn­inga undir lok árs og setur það mark sitt á fjár­hag flokks­ins. 

Flokk­ur­inn hafði 410 millj­óna króna tekjur en af þeim komu 201 úr opin­berum sjóðum. Fyr­ir­tæki styrktu flokk­inn um tæpar 66 millj­ónir og ein­stak­lingar um tæpar 57. Hluti af fram­lagi ein­stak­linga til flokks­ins var í formi félags­gjalda. 

Opin­berir styrkir eru tölu­vert lægra hlut­fall af heild­inni en hjá mörgum öðrum flokkum. Sem dæmi má nefna var hlut­fall opin­berra styrkja 75 pró­sent af heild­ar­styrkjum Mið­flokks­ins, sam­kvæmt árs­reikn­ingi hans sem birt­ist fyrr í dag.

Þrátt fyrir tölu­vert tap er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki á flæðiskeri staddur. Samkvæmt árs­reikn­ingi á hann fast­eignir fyrir 1.260 millj­ónir og ýmis áhöld og tæki fyrir 54,5 millj­ónir og eign­ar­hlut í félögum fyrir tæpar 19. 

Þá á félagið kröfu vegna lóðar og bygg­inga­réttar upp á rúmar 238 millj­ónir og aðrar skamm­tíma­kröfur upp á 27 millj­ónir. Flokk­ur­inn á hand­bært fé upp á 176 millj­ónir. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Hvers vegna eiga stjórnmálaflokkar að vera á opinberu framfæri? Að tæp 50% af tekjum Sjálfstæðisflokksins komi frá opinberum sjóðum hefði einhvern tíma þótt vera hneyksli.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár