Sagan öll: Voru á leiðinni út þegar Margrét varð föður sínum að bana

Margrét Halla Hans­dóttir Löf beitti for­eldra sína grófu heim­il­is­of­beldi sem leiddi til dauða föður hennar. Henni fannst und­ar­legt að for­eldrar sínir hefðu ekki verið hand­tekin sama dag og faðir hennar fannst þungt hald­inn.

Sagan öll: Voru á leiðinni út þegar Margrét varð föður sínum að bana
Jólatré var enn uppi og blóð­slettur upp um veggi þegar lög­reglan kom inn í eitt glæsi­leg­asta ein­býl­is­hús Garða­bæjar. Mynd: Golli

„Það voru slags­mál, það voru bara slags­mál, viltu senda bíl,“ sagði móðir Mar­grétar Höllu Hans­dóttur Löf, þegar hún hringdi eftir hjálp snemma morg­uns föstu­dag­inn 11. apríl síð­ast­lið­inn. Eig­in­maður hennar og faðir Mar­grétar, Hans Roland Löf, lá með­vit­und­ar­laus á gólf­inu í stóru and­dyri húss­ins eftir að hafa fallið á gólfið eftir heila nótt af ofbeldi sem hann mátti þola af hálfu dóttur sinnar, sem ent­ist í um tíu klukku­stundir í þeirri lotu. Neyð­ar­vörður heyrði að Margrét kom til móður sinnar sem stumr­aði yfir stórslös­uðum föður hennar sem átti átt­ræð­is­af­mæli sama dag. Í fram­hald­inu heyrði neyð­ar­vörð­ur­inn Margréti spyrja móður sína: „En af hverju datt hann?“

„Ég veit það ekki, Margrét,“ svar­aði móðir hennar tví­vegis og kom fram á upp­töku neyð­ar­varðar. Mæðgurnar snéru Hans á bakið og neyð­ar­vörður leið­beindi móður Mar­grétar hvernig ætti að opna fyrir önd­un­ar­veg hans. Í sömu andrá heyrð­ist Margrét spyrja: „En gerð­ist eitt­hvað þegar hann datt á gólfið?“

…
Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
    Af hverju heldur hún erfðaréttinum? Metin sakhæf! Óskiljanlegt hvorutveggja:
    Það væri sök sér, væri hún ósakhæf, en óskiljanlegt í ljósi sakhæfismats! Hvaða þekkingu á persónuleikafrávikum hafa dómarar í þessu máli aflað sér? Niðurstaða þeirra er óskiljanleg. Fagleg fjarvera og fálæti um alvarleikann er yfirþyrmandi sorgleg útkoma....
    2
  • SS
    Svanur Sigurbjörnsson skrifaði
    Takk fyrir góða samantekt um þetta sorglega mál. Það er merkileg en sorgleg staðreynd að það sé ekkert í íslenskum lögum (geri ráð fyrir því) um að barn sem drepur foreldri sitt skuli ekki í leiðinni fyrirgera rétti sínum á að erfa eignir foreldrisins. Það er erfitt að ímynda sér meðrök fyrir því að erfðaréttinum sé haldið í þessum tilvikum.
    13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár