Kosningabarátta Miðflokksins kostaði 140 milljónir

Mið­flokk­ur­inn tap­aði 133 millj­ónum króna á síð­asta ári eftir 24 millj­óna hagnað árið áður. Kosn­inga­bar­átta upp á 140 millj­ónir í nóv­em­ber hafði mest um þennan við­snún­ing að segja.

Kosningabarátta Miðflokksins kostaði 140 milljónir

Kosn­inga­bar­átta Mið­flokks­ins fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar kost­aði flokk­inn tæp­lega 141 milljón króna. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Mið­flokks­ins sem hefur hlotið sam­þykki Rík­is­end­ur­skoð­unar. Sér­stak­lega er gerð grein fyrir kostn­aði flokks­ins vegna kosn­ing­anna í reikn­ingnum.

Flokk­ur­inn skil­aði meira en 133 millj­óna króna tapi og spilar þar kosn­inga­bar­áttan stærsta rullu. Rekstur flokks­ins að öðru leyti jókst þó líka á milli ára, því lið­ur­inn „aðal­skrif­stofa“ í rekstr­ar­reikn­ingi kost­aði 57 millj­ónir í fyrra en hafði kostað 35 millj­ónir árið áður. Þá jókst kostn­aður við kjör­dæma- og und­ir­fé­lög um nærri fjórar millj­ónir á milli ára.

Tekjur flokks­ins koma fyrst og fremst úr opin­berum sjóðum. Þannig telur flokk­ur­inn fram 50 millj­óna króna fram­lag úr rík­is­sjóði og frá Alþingi, sem líka er fjár­magnað úr rík­is­sjóði. Framlög sveit­ar­fé­laga námu tæpum 900 þús­undum á árinu. Af 69 millj­óna króna heild­ar­tekjum flokks­ins komu því rétt um 75 pró­sent úr opin­berum sjóðum.

Fyr­ir­tæki styrktu flokk­inn þó um 12,4 millj­ónir og ein­stak­lingar um önnur 890 þús­und. Átta fyr­ir­tæki styrktu flokk­inn um sam­tals 650 þús­und krónur, en 100 þús­und af hverjum styrk runnu til kjör­dæma­fé­laga í ólíkum kjör­dæmum. Sex af átta stærstu styrk­veit­endum eru fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi. 

Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns og stofn­anda Mið­flokks­ins, var sá ein­stak­lingur sem veitti stærsta styrk­inn. Hún styrkti flokk­inn um 550 þús­und krónur, sem er hámarkið sam­kvæmt lögum. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Stjórnmálaflokkar eiga ekki að vera styrktir af opinberum sjóðum. Hægri flokkarnir þrasa mikið um skatta og hækkanir en vilja lítið segja um hvar megi spara og skera niður útgjöld þess opinbera. Ætli hefði ekki verið meiri þörf fyrir heilbrigðismálin að fá aukið fé fremur en að fjármagna stjórnmálaþrasið sem skilar engu til þjóðarbúsins. Sjúklingar sem aftur komast í vinnu eftir veikindi taka þátt í rekstri samfélagsins. Stjórnmálaþrasarar eiga ekki mína samúð. Þeir eiga að kosta sitt þras sjálfir en ekki sækja í opinbera sjóði til að fjármagna starf sitt og þras..
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár