„Óbærilega vitskert að veita friðarverðlaun Nóbels til Machado“

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri WikiLeaks, segir Nóbels­nefnd­ina skapa rétt­læt­ingu fyrir inn­rás Banda­ríkj­anna í Venes­ú­ela með því að veita María Corina Machado, „klapp­stýru yfir­vof­andi loft­árása“, frið­ar­verð­laun. Julian Assange, stofn­andi WikiLeaks, hefur kraf­ist þess að sænska lög­reglan frysti greiðslur til Machado.

„Óbærilega vitskert að veita friðarverðlaun Nóbels til Machado“

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri WikiLeaks, segir að stutt geti verið í alls­herj­ar­árás Banda­ríkj­anna á Venes­ú­ela. Hann segir nýjan frið­ar­verð­launa­hafa Nóbels vera klapp­stýru fyrir árásum á landið og að Banda­ríkin stefni á að kom­ast yfir olíu­birgðir lands­ins með sama hætti og gert var með inn­rásinni í Írak.

Julian Assange, stofn­andi WikiLeaks, sendi í gær kæru til yfir­valda í Svíþjóð þar sem hann krefst þess að lög­regla frysti greiðslur upp á 11 millj­ónir sænskra króna, and­virði um 150 millj­óna íslenskra króna, til María Corrina Machado, stjórn­ar­and­stæð­ings í Venes­ú­ela, sem hlaut frið­ar­verð­laun Nóbels á dög­unum.

Kristinn segir í færslu á Facebook í dag að hann styðji við kæru Assange. „Þó að Nóbels­nefndin í Osló ákveði frið­ar­verð­launa­hafann hafa Svíar ábyrgð á umsýslu fjár­muna tengdum arfi Alfred Nóbels en veit­ing fjár­muna til Machado er gróf­lega á skjön við mark­við frið­ar­verð­laun­anna sem hann skráði skýrt í erfða­skrá,“ skrifar Kristinn. „Það kemur einnig til álita …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Glókollurinn síguli í usa vill mikið.
    0
  • SÓ
    Stefán Ólafsson skrifaði
    Hvar í austurhluta Kyrrahafs átti þetta sér stað ?
    -2
    • ADV
      Arndís Dögg Valgarðsdóttir skrifaði
      Venesúela liggur að Karabíuhafi og Norður Atlantshafi. Kíktu á kort.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár