„Óbærilega vitskert að veita friðarverðlaun Nóbels til Machado“

Krist­inn Hrafns­son, rit­stjóri Wiki­Leaks, seg­ir Nó­bels­nefnd­ina skapa rétt­læt­ingu fyr­ir inn­rás Banda­ríkj­anna í Venesúela með því að veita María Cor­ina Machado, „klapp­stýru yf­ir­vof­andi loft­árása“, frið­ar­verð­laun. Ju­li­an Assange, stofn­andi Wiki­Leaks, hef­ur kraf­ist þess að sænska lög­regl­an frysti greiðsl­ur til Machado.

„Óbærilega vitskert að veita friðarverðlaun Nóbels til Machado“

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, segir að stutt geti verið í allsherjarárás Bandaríkjanna á Venesúela. Hann segir nýjan friðarverðlaunahafa Nóbels vera klappstýru fyrir árásum á landið og að Bandaríkin stefni á að komast yfir olíubirgðir landsins með sama hætti og gert var með innrásinni í Írak.

Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, sendi í gær kæru til yfirvalda í Svíþjóð þar sem hann krefst þess að lögregla frysti greiðslur upp á 11 milljónir sænskra króna, andvirði um 150 milljóna íslenskra króna, til María Corrina Machado, stjórnarandstæðings í Venesúela, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels á dögunum.

Kristinn segir í færslu á Facebook í dag að hann styðji við kæru Assange. „Þó að Nóbelsnefndin í Osló ákveði friðarverðlaunahafann hafa Svíar ábyrgð á umsýslu fjármuna tengdum arfi Alfred Nóbels en veiting fjármuna til Machado er gróflega á skjön við markvið friðarverðlaunanna sem hann skráði skýrt í erfðaskrá,“ skrifar Kristinn. „Það kemur einnig til álita að lög …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Glókollurinn síguli í usa vill mikið.
    0
  • Stefán Ólafsson skrifaði
    Hvar í austurhluta Kyrrahafs átti þetta sér stað ?
    -2
    • ADV
      Arndís Dögg Valgarðsdóttir skrifaði
      Venesúela liggur að Karabíuhafi og Norður Atlantshafi. Kíktu á kort.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“
5
StjórnmálBandaríki Trumps

Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðg­un við Ís­lend­inga“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir færslu Don­ald Trump, þar sem Ís­land var sýnt und­ir banda­ríska fán­an­um, al­gjör­lega óvið­eig­andi. Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra seg­ir und­ir­tón færsl­unn­ar fá­rán­leg­an og hana móðg­un við Ís­lend­inga, Kan­ada­menn og Græn­lend­inga. Banda­ríski sendi­herr­ann var kall­að­ur á fund vegna máls­ins.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár