Aldrei lægra hlutfall landsmanna í þjóðkirkjunni

Þeim fjölgar sem eru skráð utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga en 54,5 pró­sent lands­manna voru í þjóð­kirkj­unni í byrjun des­em­ber í ár. Mest fjölg­aði í Kaþólsku kirkj­unni milli ára.

Aldrei lægra hlutfall landsmanna í þjóðkirkjunni
Nes­kirkja Aldrei hefur jafn lít­ill hluti lands­manna verið skráður í þjóð­kirkj­una. Mynd: Golli

Alls voru 224.056 skráð í þjóð­kirkj­una 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn sam­kvæmt skrán­ingu Þjóð­skrár. Er það um 54,5 pró­sent lands­manna en aldrei hefur jafn lít­ill hluti lands­manna verið skráður í þjóð­kirkj­una.

Til sam­an­burðar var 65,2 pró­sent lands­manna í þjóð­kirkj­unni 1. des­em­ber árið 2019. Þjóð­kirkjan er fjöl­menn­asta trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lag lands­ins en næst kemur Kaþólska kirkjan með 15.917 skráða með­limi og í þriðja sæti er Frí­kirkjan í Reykja­vík með 10.053 skráða með­limi.

Mest hefur fjölgað í Kaþólsku kirkj­unni frá 1. des­em­ber 2024 eða um 369 með­limi. Mest hlut­falls­leg fjölgun var hjá Wat Phra búddista­sam­tök­unum, eða um 25 pró­sent.

Þá voru 30.931 skráð utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga sem er 0,5 pró­sent hækkun frá 1. des­em­ber 2024. „Ef að ein­stak­lingur er utan trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­laga þá hefur sá ein­stak­lingur tekið afstöðu til þeirrar skrán­ingar sinnar,“ segir í frétt Þjóð­skrár. „Alls voru 94.646 ein­stak­lingar skráðir með ótil­greinda skrán­ingu. Ef að ein­stak­lingur er …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Sér er nú hvað! Til hvers er þá verið að halda upp á jól og páska ef engin er trúin hjá fólkinu manvel eftir því að aldrei var nein afmælisveisla í kringum afmælið mitt aldrei gjafir eða neitt annað að gefnu tilefni handa mer í tilefni dagsins en skemmtilegar minningar sem ég bý yfir
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Þjóðkirkjan" á alltaf að skrifast með stórum staf.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár