Yfir 500 milljónir þegar farnar í Fjarðarheiðargöng

Áætlað er að fjögur ár muni taka að koma Fjarða­göngum á það stig sem Fjarð­ar­heið­ar­göng eru þegar komin. Stjórn­völd hafa frestað þeim síð­ar­nefndu og sett þau fyrr­nefndu í for­gang. Sveit­ar­stjóri Múla­þings segir málið svik við íbúa Aust­ur­lands og sóun á skattfé.

Yfir 500 milljónir þegar farnar í Fjarðarheiðargöng
Seyð­is­fjörður Hring­teng­ing í sam­göngum á Aust­ur­landi er aðeins mögu­leg með Fjarð­ar­heið­ar­göngum, að mati sveit­ar­stjóra Múla­þings, en þeim hefur nú verið frestað. Mynd: Heimildin / Aðalsteinn

Áfallinn kostn­aður við und­ir­bún­ing Fjarð­ar­heið­ar­ganga eru tæpar 536 millj­ónir króna. Í sam­göngu­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er fram­kvæmdum við göngin frestað en Fjarða­göng sett í for­gang.

Fjarð­ar­heið­ar­göng mundu liggja á milli Seyð­is­fjarðar og Fljóts­dals­hér­aðs og kæmu í stað veg­ar­ins um Fjarð­ar­heiði sem liggur í 620 metra hæð og er ill­fær stóran hluta árs­ins. Þau voru sett í for­gang í sam­göngu­á­ætlun sem sam­þykkt var 2020 en eru nú sett til hliðar.

Fjarða­göng tengja hins vegar Seyð­is­fjörð við Mjóa­fjörð og Norð­fjörð. Þannig eru lögð tvenn göng frá Seyð­is­firði til Mjóa­fjarðar, 5,4 kíló­metra löng, og frá Mjó­a­firði til Norð­fjarðar, 7 kíló­metra löng, sem munu rjúfa vetr­ar­ein­angrun Seyð­is­fjarðar og tengja betur sam­fé­lögin á Aust­ur­landi að því er fram kemur í nýju sam­göngu­á­ætl­un­inni.

Fjarða­göng eru sett í annað sæti í for­gangs­röðun sam­göngu­á­ætl­unar til árs­ins 2040, sem Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra kynnti á dög­unum. Sam­fé­lags­legur ábati af Fjarða­göngum var met­inn meiri en af Fjarð­ar­heið­ar­göngum og sagði Kristrún …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorvaldur Árnason skrifaði
    Já loksins þegar vegur var lagður niður í Flateyrardal þá fluttu síðustu íbúarnir burt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár