Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið eftir veikindaleyfi

Ekki er ljóst hvort Guð­mundur Ingi Krist­ins­son snúi aftur til starfa eftir veik­inda­leyfı, en hann er á leið í hjarta­að­gerð og óvíst hversu langa end­ur­hæf­ingu hann þarf, að sögn Ingu Sæland.

Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið eftir veikindaleyfi
Frá vegna veik­inda Guð­mundur Ingi hefur verið frá vegna veik­inda und­an­farna daga. Mynd: Golli

Ekki er víst að Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, mennta- og barna­mála­ráð­herra, snúi aftur til starfa í ráðu­neyt­inu að loknu veik­inda­leyfi. Guð­mundur Ingi er á leið í hjarta­að­gerð.

Þetta kom fram í Silfrinu á RÚV í kvöld, þar sem Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, tók þátt í umræðum for­manna flokka á þingi. Sagði hún að óljóst væri hvernig fram­haldið yrði eftir aðgerð­ina. „Það veit eng­inn hvernig það fer, ein­stak­lingar þurfa að fara í end­ur­hæf­ingu, mis­langa, og annað slíkt eftir slíka aðgerð,“ sagði Inga Sæland orð­rétt.

Guð­mundur Ingi tók við emb­ætti mennta- og barna­mála­ráð­herra í mars síð­ast­liðnum, þegar Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir sagði af sér. Þegar greint var frá því að Guð­mundur Ingi færi í veik­inda­leyfi var sagt að hann myndi snúa aftur til starfa að leyf­inu loknu.

Óljóst er hvenær eða hvort ákvörðun verður tekin um var­an­lega lausn í ráðu­neyt­inu, en málið ræðst að sögn Ingu Sæland af bata­ferli ráð­herr­ans eftir aðgerð­ina. …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár