Rigg Friðriks Ómars nálgast fyrri umsvif

Fyr­ir­tæki Friðriks Ómars Hjör­leifs­sonar tón­list­ar­manns nálg­ast sömu veltu og fyrir COVID, þegar umsvif þess hrundu. Annað félag heldur þó utan um fjölda jólatón­leika sem hann stendur á bak við í Hörpu með Jógvan Hansen og Eyþóri Inga.

Gengur vel
Gengur vel Tón­leika­hald Friðriks Ómars virð­ist ganga vel.

Rigg ehf, fyr­ir­tæki Friðriks Ómars Hjör­leifs­sonar, skil­aði 12 millj­óna króna rekstr­ar­hagn­aði á síð­asta ári, af meira en 100 millj­óna króna tekjum vegna verk­efna. Eftir fjár­magns­gjöld og skatta nam hagn­að­ur­inn rétt um fjórum millj­ónum króna og til stendur að greiða út arð. Það verður þó ákveðið á aðal­fundi, sam­kvæmt til­lögu stjórnar. Friðrik Ómar er eini stjórn­ar­mað­ur­inn og eini eig­and­inn.

Umsvif félags­ins nálg­ast nú að vera jafn mikil og fyrir COVID-far­ald­ur­inn, en starf­semi Rigg dróst veru­lega saman árið 2020. Í gegnum félagið er Friðrik Ómar einn af umsvifa­meiri tón­leika­höld­urum lands­ins og hefur haldið fjölda tón­leika þar sem þekkt tón­list­ar­fólk er heiðrað. Meðal tón­leika sem hann hefur staðið á bak við eru afmæl­is­tón­leikar Vil­hjálms Vil­hjálms­sonar í Eld­borg­ar­sal Hörpu og Hofi á Akureyri og kom­andi tón­leikar í Hörpu, þar sem hann kemur fram sjálfur ásamt Guðrúnu Gunnars.

Eitt stærsta verk­efni Rigg hefur þó verið að setja upp Fiski­dags­tón­leik­ana á Dalvík. Þeir voru …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár