Píratar vilja í viðræður um sameiginlegt framboð

Stjórn Pírata í Reykja­vík hefur ákveðið að fara í við­ræður við aðra flokka um sam­eig­in­legt fram­boð fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Píratar vilja í viðræður um sameiginlegt framboð
Fundur Ákvörð­unin var sam­þykkt sam­hljóða á fundi hjá Pírötum í Reykja­vík. Mynd: Sigtryggur Ari

Píratar í Reykja­vík sam­þykktu á félags­fundi í dag að veita stjórn félags­ins umboð til að hefja við­ræður um sam­eig­in­legt fram­boð til borg­ar­stjórnar í kosn­ing­unum vorið 2026. Ákvörð­unin var sam­þykkt ein­róma.

Í til­kynn­ingu segir að mark­miðið með við­ræð­unum sé að kanna grund­völl fyrir sam­starf í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Formaður Pírata, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, segir flokk­inn hafa skýra sýn á fram­tíð borg­ar­innar.

„Píratar eru rödd mann­rétt­inda, lýð­ræðis og grænnar borgar. Við höfum gjör­bylt þjón­ustu borg­ar­innar við íbúa og fært hana inn í nútím­ann svo eftir er tekið á alþjóða­vísu. Við höfum fram­tíð­ina ávallt að leið­ar­ljósi og ég er bæði spennt og fyllt vonar til þess­ara næstu skrefa í sögu Pírata í Reykja­vík,“ segir hán.

Ekki kemur fram í til­kynn­ing­unni við hvaða aðila Píratar hyggj­ast ræða um sam­eig­in­legt fram­boð, né hvenær við­ræður hefj­ast. Líklegt verður þó að telj­ast að það sé Vor til vinstri, nýtt fram­boð Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur sem situr í borg­ar­stjórn fyrir Sós­í­alista­flokk Íslands. Hún kall­aði eftir sam­tali við aðra flokka þegar hún kynnti nýja fram­boðið. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár