Sanna með nýtt framboð

Sá borg­ar­full­trúi sem almenn­ingi þykir standa sig best hefur boðað nýtt fram­boð fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Sanna með nýtt framboð
Sanna Magda­lena Var beðin um að yfir­gefa Sós­í­alista­flokk Íslands af fram­kvæmda­stjórn flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég býð því öllu félags­hyggju­fólki til fundar á nýju ári,“ segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi í nýju mynd­bandi. Sanna, sem hefur verið full­trúi Sós­í­alista­flokks Íslands, boðar nú nýtt félags­hyggju­fram­boð fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 16. maí. Hún ætlar þó að halda áfram að vera félagi í Sós­í­alista­flokki Íslands og bíður í von um nýja stjórn.

Framboð Sönnu heitir Vor til vinstri. Hún listar upp helstu mál á nýrri vef­síðu sinni. Þar segir hún að heim­ili fólks hafi verið mark­aðsvætt, sjálf­sögð þjón­usta við fólk of dýr og það þurfi „borg sem er ein­föld, þægi­leg og ódýr­ari fyrir okkur öll“.

Sanna vill leggja útsvar á fjár­magnstekjur, en sem stendur eru þær ein­göngu skatt­lagðar með 22% fjár­magnstekju­skatti sem rennur í rík­is­sjóð. „Það gengur ekki að þau tekju­hæstu og rík­ustu greiði nán­ast ekk­ert til nær­sam­fé­lags­ins. Þetta grefur undan getu borg­ar­innar til að veita öfl­uga þjón­ustu og bæta lífs­gæði,“ segir Sanna.

Ný könnun Maskínu sýndi að af öllum borg­ar­full­trúum þótti fólki Sanna standa sig best. Þrátt fyrir það hefur orðið rof milli hennar og flokks hennar, Sós­í­alista­flokks Íslands. Eftir að Sanna varp­aði vafa á hvort hún myndi bjóða sig fram fyrir annað fram­boð sendi fram­kvæmda­stjórn flokks­ins frá sér yfir­lýs­ingu um að hún ætti að yfir­gefa hann.

„Ég starfa fyrir gras­rót­ina og fólkið í borg­inni,“ segir Sanna og situr sem fast­ast í flokknum. „Þess vegna ætla ég ekki að segja mig úr flokknum, þrátt fyrir þrýst­ing frá nýrri stjórn. Ég trúi því að á næsta aðal­fundi taki fólk við stjórn sem hefur skýra sýn, heið­ar­leika og stuðn­ing meiri­hluta félaga.“ 

„Getum við lagt flokk­ana aðeins til hliðar?“ spyr Sanna í fram­boðs­mynd­band­inu. 

„Ný stjórn hefur skapað óvissu og tog­streitu meðal félaga, bæði innan sem utan flokks. Fjöldi fólks hefur áhyggjur af því hvert flokk­ur­inn stefnir. Ég skil þær áhyggjur mjög vel. En ég er sann­færð um að þessi tíma­bundna óvissa verði stuttur kafli í sögu flokks­ins,“ segir Sanna á nýrri fram­boðs­síðu sinni, Vor til vinstri.

Því virð­ist ekki verða af þeirri hug­mynd að Sanna sam­ein­ist með Vinstri grænum og Pírötum um vinstra fram­boð í borg­inni.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár