Sanna á hrakhólum talin standa sig best

Könnun sýnir að flestir telja að Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir hafi staðið sig best allra borg­ar­full­trúa. Stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands hvatti hana til að segja sig úr flokknum.

Sanna á hrakhólum talin standa sig best
Sanna borg­ar­full­trúi Hefur úti­lokað fram­boð með Sós­í­alista­flokki Íslands undir núver­andi fram­kvæmda­stjórn. Mynd: Golli

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks Íslands, er talin hafa staðið sig best allra borg­ar­full­trúa í Reykja­vík, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­unar Maskínu. 

Sanna er hins vegar orðin utan­garðs í Sós­í­alista­flokknum og hefur ný fram­kvæmda­stjórn, sem tók yfir í maí, hvatt hana til að „segja sig úr Sós­í­alista­flokki Íslands“. 

Í könn­un­inni velur fjórð­ungur, eða 24% Sönnu Magda­lenu, sem er svipað og síð­asta ár. Næst flestir, eða 21%, velja Hildi Björns­dóttur, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og hækkar hún úr 17% frá því í ágúst og úr 14% fyrir ári.

Alls telja 9% að Einar Þor­steins­son í Fram­sókn­ar­flokknum standi sig best og 8% Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, sem hvarf frá for­manns­fram­boði í Pírötum nýlega.

Hvaða full­trúi í borg­ar­stjórn hefur staðið sig best?Borg­ar­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar, Flokks fólks­ins og Vinstri grænna kom­ast ekki á lista yfir fjóra sem telj­ast hafa staðið sig best.

Framkvæmdastjórnin kvaddi Sönnu

Ný fram­kvæmda­stjórn tók við í Sós­í­alista­flokki Íslands í maí, sam­fara harð­vít­ugum deilum. 

Sanna hætti sem póli­tískur leið­togi Sós­í­alista eftir það. Stjórn flokks­ins leit­aði skýrra svara frá henni um fram­haldið.

Í sept­em­ber sagði Sanna Magda­lena að hún íhug­aði að bjóða sig fram fyrir annað fram­boð. „Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að ný stjórn Sós­í­alista­flokks­ins hefur ekki staðið heils­hugar að baki borg­ar­stjórn­ar­flokknum,“ sagði hún í sam­tali við RÚV. 

Í kjöl­farið sendi stjórn Sós­í­alista­flokks­ins frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem hún var meðal ann­ars sökuð um end­ur­tekin ósann­indi.

„Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir hefur lengst af á sinni starfsævi unnið sem atvinnu­stjórn­mála­kona sem kjör­inn full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins. Af ummælum hennar að dæma um mögu­legt fram­boð með öðrum flokki virð­ist hún horfa frekar til eigin frama í stjórn­málum en hag síns eigin flokks og fram­gang félags­hyggju á Íslandi,“ sagði í ályktun fram­kvæmda­stjórn­ar­innar.

„Eftir margra mán­aða umleit­anir fékkst hún loks á fund með fram­kvæmd­ar­stjórn en neit­aði að hitta fram­kvæmd­ar­stjórn ein­sömul líkt og aðrir borg­ar­full­trúar flokks­ins höfðu þá þegar gert. Ekki var að merkja nokkurn sam­starfsvilja af hálfu Sönnu Magda­lenu á þeim fundi,“ sagði álykt­unin.

Þá kvaddi fram­kvæmda­stjórnin hana. „Óskar fram­kvæmd­ar­stjórn Sönnu vel­farn­aðar í öllu því sem hún ákveður að taka sér fyrir hendur.“

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

4
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár