Svandís sækist ekki eftir endurkjöri

Svandís Svav­ars­dóttir mun ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri sem for­maður Vinstri grænna.

Svandís sækist ekki eftir endurkjöri

Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, mun ekki bjóða sig aftur fram til for­manns á næsta lands­fundi flokks­ins sem verður hald­inn á næsta ári. Hún segir ákvörð­un­ina per­sónu­lega og að hún hafi tekið hana „af yfir­vegun eftir sam­töl og umhugsun.“

Þessu greinir hún frá í færslu á Facebook. 

„Síðustu tutt­ugu ár hef ég helgað líf mitt stjórn­málum og bar­átt­unni fyrir betra og rétt­lát­ara sam­fé­lagi. Sú bar­átta heldur áfram. Það hafa verið for­rétt­indi að starfa í þágu almenn­ings og fá að vera í fram­línu stjórn­mál­anna allan þennan tíma,“ skrifar hún.

Svandís segir hafa fulla trú á hlut­verki Vinstri grænna. „Og mun leggja mitt af mörkum til að rödd hreyf­ing­ar­innar heyr­ist skýrt í kom­andi kosn­ingum. Mannúð, rétt­læti og ábyrgð gagn­vart nátt­úr­unni hafa aldrei verið brýnni.“

Svandís var kjörin for­maður Vinstri grænna á lands­fundi í októ­ber 2024 og tók hún við af Katrínu Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Flokk­ur­inn datt út af þingi í alþing­is­kosn­ing­unum fyrir rétt rúmu ári og mælist enn utan þings.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Það var algerlega fyrirsjáanlegt að myndun ríkisstjórnar Bjarna Ben.myndi hafa þessi áhrif. Ekki síst að taka að sér að spara í heilbrigðiskerfinu svo sægreifar sleppi við skatta. Svo var steinþagað yfir aðför að prentfrelsi og máfrelsi. Það er enginn missir að þessum flokki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár