Magga Stína um Eurovision ákvörðunina: „Í hvaða leikriti erum við stödd?“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir að ákvörðun RÚV um að taka ekki þátt í Eurovision í ár hafi ekki áhrif á sam­skipti Íslands og Ísrael. Tón­list­ar­konan Magga Stína gagn­rýnir mál­flutn­ing­inn.

Magga Stína
Magga Stína Tón­list­ar­konan bendir á að utan­rík­is­ráð­herra og útvarps­stjóri segi ákvörðun RÚV um að taka ekki þátt í Eurovision ekki póli­tíska. Mynd: Víkingur

Tón­list­ar­konan Magga Stína, sem var hand­tekin af Ísra­els­her nýverið þegar hún tók þátt í að koma hjálp­ar­gögnum til Gaza, furðar sig á við­brögðum Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra við ákvörðun RÚV um að taka ekki þátt í Eurovision á næsta ári.

Þor­gerður Katrín sagði við frétta­stofu RÚV í dag að hún væri ánægð með ákvörð­un­ina en að hún teldi hana ekki munu hafa áhrif á sam­skipti Íslands og Ísraels. Ákvörð­unin hafi verið efn­is­lega rétt en tekin á dag­skrár­legum for­sendum en ekki af hálfu stjórn­valda.

„Á hún ekki að hafa áhrif á sam­skipti Íslands og Ísraels?“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttirUtan­rík­is­ráð­herra sagði ákvörðun RÚV engu breyta um sam­skipti Íslands og Ísrael.

„Því að Ísrael, eins og aðrar þjóðir, vita fyrir hvað við Íslend­ingar stöndum,“ sagði hún. „Það eru ákveðin gildi um lýð­ræði, um frelsi, um mann­rétt­indi, um sjálf­stæði …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    If the Eurovision decision does not affect relations between the colony of Israel in Palestine then I wonder will the Genocide in Gaza affect relations?
    0
  • Greg Hill skrifaði
    Þetta hljómar mjög líkt Ólympíuleikunum. Mér líkaði „lausnin“ þar sem íþróttamenn frá löndum sem eru bannaðir frá Ólympíuleikunum gætu keppt sem „sjálfstæðir Ólympíuþátttakendur“ eða „hlutlausir íþróttamenn“. Kannski gæti Evróvisjón gert eitthvað slíkt. Það er ekki frábært ... en það gæti verið betra en kosturinn.
    0
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Mótmæli ákvörðun Rúv. Er líka hrædd um að þessi ákvörðun hjálpi ekki Íslandi, gagnvart Bandaríkjunum, því forseti þeirra er vinur þeim æðsta í Ísrael. Er vitið ekki meira hjá utanríkisráðherra Íslands?
    -6
  • Stebbi lögga og Þorgerður Katrín Jakobsdóttir vilja éta kökuna og eiga hana — og gubba henni.
    2
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Sammála Möggu Stínu
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár