Eðlilegt að fólk hafi sterkar skoðanir á uppbyggingunni við Skaftafell

Sigrún Ágústs­dóttir, for­stjóri Nátt­úru­vernd­ar­stofn­unar, segir ásýnd þjóð­garðs­ins skipta máli og að það sé eðli­legt að fólk hafi sterkar skoð­anir á upp­bygg­ing­unni í Skafta­felli. Flestum sjón­ar­miðum þjóð­garðs­ins hafi þegar verið komið á fram­færi.

Eðlilegt að fólk hafi sterkar skoðanir á uppbyggingunni við Skaftafell
For­stjóri Nátt­úru­vernd­ar­stofn­unar Ný stofnun tók til starfa í upp­hafi þessa árs. Mynd: Golli

Sigrún Ágústs­dóttir, for­stjóri Nátt­úru­vernd­ar­stofn­unar, segir það mjög eðli­legt að fólk hafi sterkar skoð­anir upp­bygg­ing­unni sem á sér nú stað í Skafta­felli. „Það væri skrítið ef það væri ekki. Þá fyrst fer ég að hafa áhyggjur, þegar fólk hættir að hafa skoð­anir á íslenskri nátt­úru.“

Nátt­úru­vernd­ar­stofnun tók til starfa í upp­hafi þessa árs og tók þá meðal ann­ars við starf­semi Vatna­jök­uls­þjóð­garðs. En líkt og Heim­ildin fjall­aði um nýlega er verið að byggja ferða­manna­hýsi við þjóð­garð­inn í Skafta­felli. Íbúar hafa lýst yfir áhyggjum yfir því að upp­bygg­ingin stang­ist á við umhverfi þjóð­garðs­ins, gjör­breyti ásýnd þjóð­garðs­ins sem og sveit­ar­innar. 

Sigrún skýrir að flestum sjón­ar­miðum þjóð­garðs­ins hafi verið komið á fram­færi þegar breyt­ingar á deiliskiplagi hafi komið til umsagnar und­an­farin ár.

„Það helsta sem við höfum að segja hefur þegar komið fram. Þetta er auð­vitað nálægt þjóð­garð­inum …

Kjósa
-4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár