Hafa „selt“ myllumerki fyrir meira 12 milljónir

Ungur maður sem hef­ur vak­ið at­hygli fyr­ir að selja Ís­lend­ing­um gervi­greind­ar­nám­skeið, býð­ur nú upp á að „kaupa“ myllu­merki á sam­fé­lags­miðl­um. Hann full­yrðir að hann hafi selt merki fyr­ir hátt í þrett­án millj­ón­ir króna.

Vefsíða sem ungur íslenskur maður í Dubai aug­lýsir á sam­fé­lags­miðlum – og seg­ist hafa stofnað – hefur selt NFT-mynd­tákn af hund­ruðum myllu­merkja frá því í gær. Maðurinn, Sergio Herrero Medina, hefur lofað fylgj­endum sínum á sam­fé­lags­miðlum, og hund­ruðum fylgj­enda hans í WhatsApp spjall­hópum, því að hægt sé að græða veru­legar fjár­hæðir á að kaupa NFT-mynd­tákn af honum. 

„Ekki missa af þessu tæki­færi. Þetta er eins og bitcoin í byrjun,“ skrif­aði hann til fylgj­enda sinna og hlekkjar á vef­síðu sem heitir XTrends. 

Samkvæmt gjöldum sem eru inn­heimt fyrir að kaupa hvert tákn, hefur Sergio og þeir sem standa með honum að þess­ari sölu, rukkað sem nemur 742 sol­ana-myntum, sem er raf­mynt á borð við Bitcoin. Það jafn­gildir um 12,8 millj­ónum króna, miðað við gengi Solana í morgun. 

„Þið vitið …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár