Ísland sniðgengur Eurovision

„Til ham­ingju Ísland,“ sagði Stefán Jón Hafstein, stjórn­ar­for­maður RÚV, eftir fund þar sem útvarps­stjóri kynnti ákvörðun fram­kvæmda­stjórnar um að sleppa þátt­töku í söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva.

Ísland sniðgengur Eurovision
Stjórn­ar­for­maður Stefán Jón Hafstein lagði fram til­lögu þess efnis að Ísland tæki ekki þátt ef Ísrael væri með í Eurovision. Mynd: Víkingur

Ísland mun ekki taka þátt í Eurovision á næsta ári. Þetta var til­kynnt eftir fund stjórnar RÚV núna síð­degis. Síðasti dagur til að stað­festa þátt­töku í keppn­inni var í dag. 

„Ljóst er miðað við opin­bera umræðu hér á landi og við­brögð við ákvörðun EBU sem tekin var í síð­ustu viku að hvorki mun ríkja gleði né friður um þátt­töku RÚV í Eurovision. Það er því nið­ur­staða RÚV að til­kynna EBU um það í dag að RÚV taki ekki þátt í Eurovision á næsta ári,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá RÚV. Ekki liggur fyrir hvort haldin verði söngvakeppni á næsta ári. 

„Fyrir mína hönd segi ég: Til ham­ingju Ísland,“ sagði Stefán Jón Hafstein, stjórn­ar­for­maður RÚV, að fund­inum loknum. Að hans mati væri nið­ur­staðan far­sæl.

Til stóð að stjórnin myndi kjósa um þátt­tök­una, en ekki kom til atkvæða­greiðslu, þar sem útvarps­stjóri kynnti stjórn að fram­kvæmda­stjórn RÚV hefði ákveðið að taka ekki þátt.

Dagskrárlegar forsendur

Útvarps­stjóri skýrði að ákvörð­unin hefið verið tekin á dag­skrár­legum for­sendum. Þegar við­burður vekur ekki gleði og sam­einar ekki þjóð­ina lengur sé ástæða til að hugsa sinn gang. „Það er aug­ljóst að þessi keppni er ekki að sam­eina okkur með sama hætti og verið hefur und­an­farin ár af ástæðum sem blasa við öllum og þess vegna er þessi ákvörðun tekin.“ Í henni fælust ekki póli­tísk skila­boð af hálfu RÚV.

Stjórn­ar­for­maður RÚV sagði aðspurður að það hefði „alls ekki“ verið ein­hugur meðal stjórn­ar­manna um þessa nið­ur­stöðu. „En hún fékkst og það var alveg nægur meiri­hluti fyrir því innan stjórn­ar­innar að aft­ur­kalla þátt­töku í Eurovision.“

Eurovision verður enn send út, sem og atriði Ísraels. „Við erum ekki í neinni rit­skoðun hér,“ segir útvarps­stjóri. 

Alvarlegar athugasemdir við morð á fréttamönnum

Grunnur ákvörð­un­ar­innar er staðan á Íslandi. „Það er erfitt að fá lista­menn til þátt­töku í þessu verk­efni,“ sagði útvarps­stjóri. Hann hefði enn fremur komið því á fram­færi við Samband evr­ópskra sjón­varps­stöðva (EBU) að fram­ferði Ísra­els­manna á Gaza gagn­vart fjöl­miðla­mönnum væri með þeim hætti að ekki væri annað hægt en að gera mjög alvar­legar athuga­semdir. „Það er eitt­hvað sem við getum gert og beitt okkur fyrir á vett­vangi EBU í þessu sam­hengi og það höfum við gert.“

Stefán Jón greip þá keflið og sagði að um fjöl­miðlapóli­tíska stefnu­mótun væri að ræða. „Sem felst í því að mót­mæla því að eitt aðild­ar­ríki beiti frétta­banni, rit­skoðun og morðum á frétta­mönnum. Það eru aðferðir sem EBU eiga ekki að líða þátt­töku­ríki.“ Þrátt fyrir að átök­unum hefði linnt á Gazasvæðinu væri það enn ótrú­lega slæmt. „Þetta er ekki vopna­hlé í þeim skiln­ingi sem við höfum.“

Áður en fund­ur­inn hófst sagði Stefán Jón Hafstein, stjórn­ar­for­maður RÚV, að hann legði til að Ísland tæki ekki þátt ef Ísrael yrði með og að hann ætti von á góðri nið­ur­stöðu fyrir Ísland. Diljá Ámunda­dóttir Zoëga, vara­for­maður stjórnar, sagði einnig fyrir fund­inn að hún von­að­ist til þess að Ísland tæki ekki þátt í keppn­inni.

Hávær krafa hefur verið um að Ísland dragi sig úr þátt­töku í Eurovision æ síðan Ísrael réðst inn á Gaza undir lok árs 2023. Fjöldi mót­mæl­enda var saman kom­inn fyrir utan RÚV áður en stjórnin fund­aði til að hvetja til snið­göngu keppn­innar.

Logi Ein­ars­son, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra, sagði fyrr í vik­unni að hann teldi rétt að snið­ganga Eurovision í ljósi þátt­töku Ísraels. 

Fleiri lönd sniðganga

Full­trúar evr­ópskra sjón­varps­stöðva sam­þykktu að leyfa Ísraelum að taka þátt í keppn­inni á næsta ári sem verður haldin í Vín í Aust­ur­ríki. Í kjöl­farið til­kynntu nokkur lönd að þau hygð­ust ekki taka þátt í keppn­inni. Þar á meðal eru Holland, Spánn, Írland og Slóvenía. Belgía hafði áður til­kynnt að hún ætl­aði ekki að taka þátt ef Ísrael yrði leyft að keppa en rík­is­sjón­varp lands­ins sneri ákvörð­un­inni.

Þetta er síður en svo í fyrsta skipti sem kallað er eftir snið­göngu Eurovision vegna þátt­töku til­tek­inna þjóða, líkt og Guardian fjall­aði um á dög­unum.

Það var Spánn sem var til­efnið að fyrsta snið­göngu­kall­inu í sögu keppn­innar. Eftir að Spánn sigr­aði keppn­ina árið 1968 og hélt hana árið eftir var kallað eftir því að hún yrði snið­gengin vegna stjórnar Franco á land­inu.

Vara­for­maður stjórnar mætir á fundStjórn­ar­menn RÚV fund­uðu klukkan 15 í dag.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Congratulations RUV! Congratulations Iceland!
    0
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Ætti ríkisstjórn Íslands að dæma þetta og helst með þjóðaratkvæðagreiðslu?
    0
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Ég er bæði með og á móti. Ef þessi ákvörðun skaðar Ísland vegna afstöðu Bandaríkjaforseta, sem er vinur æðstu manna í Ísrael, væri þessi neitun slæmt spor. En kannski er hún í lagi. En ég hef alltaf undrast, af hverju Ísrael fær að vera með, landið er ekki í Evrópu.
    0
  • Viðar Eggertsson skrifaði
    Réttara er: Ákvörðunin var framkvæmdastjórnar RÚV, en ekki stjórnar RÚV.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár