Þegar kirkjan tók næstum kúlulán: „Guði sé lof fyrir fávisku mína“

Lagt var hart að biskup að taka kúlu­lán fyrir öllum skuldum kirkj­unnar fyrir hrun. Auk þess var lagt til að eignir hennar yrðu seldar í fast­eigna­fé­lög. Biskup segir eigin fávisku hafa bjargað kirkj­unni frá þeim örlögum.

Þegar kirkjan tók næstum kúlulán: „Guði sé lof fyrir fávisku mína“

Minnstu mun­aði að þjóð­kirkjan tæki kúlu­lán fyrir hrun og var lagt hart að Karli Sig­ur­björns­syni, þáver­andi biskup íslensku þjóð­kirkj­unnar, að fall­ast á slíkt. Þetta kemur fram í æviminn­ingum Karls sem nefn­ast Skrifað í sand og fund­ust eftir and­lát hans. Veröld gefur út bók­ina sem er óvenju hisp­urs­laus og ein­læg. Heim­ildin hefur þegar fjallað um erfið ár vegna kyn­ferð­is­of­beldis Ólafs Skúla­sonar bisk­ups og síðar átök bisk­ups við rík­is­stjórn Davíðs Odds­sonar. Hér verður fjallað um hrunið og eft­ir­köst þess fyrir kirkj­una.

„Hinn 6. októ­ber 2008 er dagur sem seint gleym­ist,“ skrifar Karl og vísar þá í alræmda dag­setn­ingu þegar Geir H. Haarde hélt ræðu sína í beinni útsend­ingu á RÚV og lauk henni á fleygum orðum: „Guð blessi Ísland.“

Því má halda því fram með góðum rökum að í huga íslensku þjóð­ar­innar hafi hrunið byrjað á þess­ari heilögu kveðju.

„Tær snilld“

Karl spyr hvað hafi gerst í hrun­inu …

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár