Svona breytast fjárlögin

Ný þjóð­hags­spá og nýj­ar út­gjalda­til­lög­ur leggja grunn­inn að breyt­inga­til­lög­um sem meiri­hluti fjár­laga­nefnd­ar legg­ur fram. Gjöld hækka vel um­fram tekj­ur og 0,5% halli á fjár­lög­um er áætl­að­ur á næsta ári.

Svona breytast fjárlögin
Ragnar Þór Ingólfsson Formaður fjárlaganefndar og meirihluti hennar skilar áliti þar sem lögð er til útgjaldaaukning upp á 19,6 milljarða króna á meðan tekjur hækka um 7,5 milljarða. Mynd: Eyþór Árnason

Meirihluti fjárlaganefndar, með Ragnar Þór Ingólfsson, þingmann Flokks fólksins og formann nefndarinnar, í forystu, hefur lagt fram breytingartillögur á fjárlagafrumvarpinu.

Tillögur stjórnarmeirihlutans fela í sér milljarða útgjöld í verkefni sem flest varða félagsmál eins og almannatryggingar og þjónustu við fólk með fíknivanda og einnig 2 milljarða króna framlag vegna öryggisvistunar.

Breytingarnar eru að hluta til komnar vegna uppfærðrar þjóðhagsspár Hagstofunnar sem sýnir hægari vöxt í efnahagslífinu. Þegar frumvarpið var lagt fram var gert ráð fyrir 2,2% hagvexti í ár og 2,6% hagvexti á næsta ári. Nú hafa horfurnar hins vegar versnað og gert er ráð fyrir 1,8% hagvexti á næsta ári. „Í upphaflegu hagspánni var reiknað með að útflutningur myndi aukast um 2,5% á næsta ári en nú er reiknað með að nánast enginn vöxtur verði í útflutningi á næsta ári,“ segir í áliti meirihlutans.

„Nú er reiknað með að nánast enginn vöxtur verði í útflutningi“

Til að mæta þessu …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
4
ViðtalHorft til Evrópu

„Ef við vilj­um gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar á hag­kerf­inu er­um við bet­ur sett ut­an ESB“

Full­veldi Ís­lands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­mál­um þarf að vera til stað­ar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar, seg­ir Jök­ull Sól­berg Auð­uns­son, stjórn­ar­mað­ur í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og var­ar við mögu­leik­an­um á her­skyldu inn­an ESB.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
5
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár