Forsetinn náðar maka þingmanns

Trump náðar fólk sem teng­ist Repúblik­ana flokknum og styður hann sjálfan. Hún var „alvöru Trump-repúblikani“ og mað­ur­inn hennar var dæmdur í fang­elsi. Trump hefur nú náðað hann.

Forsetinn náðar maka þingmanns
Donald Trump For­set­inn hefur náðað fjöl­marga fylg­is­menn sína. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur náðað eig­in­mann þing­kon­unnar Díönu Hars­hbar­ger, repúblik­ana frá Tennessee, sam­hliða fjölda náð­ana sem veittar voru banda­mönnum.

Eig­in­maður þing­manns­ins, Robert Hars­bar­ger yngri, ját­aði sig sekan um svik í heil­brigð­is­kerf­inu og dreif­ingu á rangt merktu lyfi árið 2013. Lyfin voru nýrna­lyf, sem sum komu frá Kína, og höfðu ekki verið sam­þykkt til notk­unar af Matvæla- og lyfja­eft­ir­liti Banda­ríkj­anna.

New York Times greinir frá þessu í dag. Þing­konan, sem einnig er lyfja­fræð­ingur, var stjórn­ar­maður og umboðs­maður American Inhalation Medication Specialists, fyr­ir­tæk­is­ins sem eig­in­maður hennar seldi lyfin í gegnum, sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrám sem sýna að fyr­ir­tækið var lagt niður árið 2018. Í kosn­inga­bar­áttu sinni til þings árið 2020, þar sem hún naut stuðn­ings Trumps, afneit­aði hún í sam­tali við fjöl­miðla að hafa haft nokkur tengsl við fyr­ir­tækið, eftir að hún hafði verið tengd við sak­fell­ingu sak­fell­ingu eig­in­manns hennar í aug­lýs­ingum. Hars­hbar­ger var dæmdur árið 2013 í fjög­urra ára fang­elsi og gert að greiða meira en 848.000 doll­ara (130 millj­ónir króna) í skaða­bætur, auk 25.000 doll­ara (3,5 millj­óna króna) sektar og 425.000 doll­ara (60 millj­ónir króna) í upp­töku eigna.

Frú Hars­hbar­ger fékk stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu frá Trump í kosn­inga­bar­áttu sinni árið 2020 og í öllum end­ur­kjör­stil­raunum sínum. Hann hrós­aði henni sem „alvöru íhalds­sömum Trump-repúblik­ana“ árið 2021 og í færslu á sam­fé­lags­miðlum í síð­ustu viku kall­aði hann hana „mjög far­sælan lyfja­fræð­ing og kaup­sýslu­konu“.

Náðar samflokksmenn og stuðningsfólk

Trump hefur náðað yfir 1.600 manns eftir að hann var kjör­inn for­seti, en flestir þeirra voru þau sem réð­ust inn í banda­ríska þing­húsið í jan­úar 2021, eftir að Trump hafði hvatt hóp­inn áfram og ítrekað haldið því fram að hann hefði tapað for­seta­kosn­ing­unum vegna kosn­inga­svindls.

Hann náð­aði fyrr­ver­andi þing­mann Repúblik­ana, George Santos, fljót­lega eftir að hann var dæmdur í sjö ára fang­elsi fyrir marg­vís­leg brot.

„Hann laug eins og and­skot­inn, en var alltaf 100% með Trump,“ sagði Trump. „Að minnsta kosti hafði Santos hug­rekkið, sann­fær­ing­una og vits­mun­ina til að KJÓSA ALLTAF REPÚBLIKANA,“ sagði Donald Trump, þegar hann til­kynnti ákvörðun sína á sam­fé­lags­miðli hans.

Fleiri náðanir

Fleiri sem voru náð­aðir í gær voru Troy Lake, dísil­vél­virki sem hafði játað sig sekan um að hafa gert útblást­urs­stýr­ingar óvirkar sem ætl­aðar voru til að stjórna losun skað­legra meng­un­ar­efna, Michael McMahon, fyrr­ver­andi lög­reglu­maður sem var sak­felldur í tengslum við þátt­töku sína í sam­særi kín­verskra stjórn­valda um að stað­setja, fylgj­ast með og hræða fjöl­skyldu í úthverfum New Jersey, Darryl Strawberry, hafn­ar­bolta­maður sem var sak­felldur fyrir skatt­svik á tíunda ára­tugnum, og svo tveir repúblikanar frá Tennessee – fyrr­ver­andi for­seti full­trúa­deild­ar­innar og fyrr­ver­andi hátt­settur aðstoð­ar­maður – sem höfðu verið dæmdir vikum áður fyrir spill­ingu í opin­beru starfi og áttu að hefja afplánun síðar í þessum mán­uði.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár