„Spennt að heyra hvað við Sjálfstæðismenn gerum af okkur næst“

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins svar­aði kalli flokks­manna um skýra stefnu, kynnti nýja ásýnd og hjó til Sam­fylk­ing­ar­innar. Hún hrós­aði Bjarna Bene­dikts­syni fyrir sterk rík­is­fjár­mál, en gagn­rýnir Kristrúnu Frosta­dóttur fyrir verð­bólgu og háa vexti.

„Spennt að heyra hvað við Sjálfstæðismenn gerum af okkur næst“
Guðrún Haf­steins­dóttir Svaraði kalli flokks­manna um skýr­ari stefnu á fundi í Valhöll í dag. Mynd: Golli

Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, beindi spjótum sínum að Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Sam­fylk­ing­unni í ræðu sinni í Valhöll, höf­uð­stöðvum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag þar sem ný ásýnd flokks­ins og stefna var kynnt.

Guðrún gagn­rýndi Kristrúnu fyrir að ætla sér að „berja niður vexti með sleggju“, eins og hún boð­aði í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir alþing­is­kosn­ingar, þar sem Sam­fylk­ingin fékk meiri stuðn­ing en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og náði að koma saman meiri­hluta.

„Við berjum enda ekki niður vexti með sleggu. Þeir eru ákveðnir af pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka, eins og hag­fræð­ing­ur­inn Kristrún Frosta­dóttir á að vita. Og þeir verða ekki lækk­aðir nema nefndin sé sann­færð um að verð­bólgan rjúki ekki upp í kjöl­farið. Til þess að svo verði þurfa rík­is­fjár­málin að vera í lagi. Heið­ar­legra hefði því verið af Kristrúnu að segja ein­fald­lega: Við ætlum okkur að halda áfram góðri og traustri vinnu Bjarna Bene­dikts­sonar í fjár­mála­ráðu­neyt­inu við að ná tökum á rík­is­fjár­mál­unum. Og um leið von­umst við til þess að pen­inga­stefnu­nefndin haldi áfram að lækka vexti eins og hún var byrj­iuð að gera í tíð fyrri rík­is­stjórnar.“

Vextir náðu hátindi hjá Sjálfstæðisflokknum

Bjarni Bene­dikts­son, for­veri Guðrúnar í for­manns­stóli, var fjár­mála­ráð­herra frá árinu 2017 til októ­ber 2023. Í hans ráð­herra­tíð lækk­uðu stýri­vextir gríð­ar­lega vegna áhyggja innan Seðla­bank­ans af kælandi áhrifum Covid-far­ald­urs­ins á efna­hags­lífið, en hækk­uðu síðan ört, þar til þeir náðu hámarki í 9,25%, þar sem þeir voru enn þegar Bjarni hætti sem fjár­mála­ráð­herra.

Í októ­ber 2023 tók Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, einnig í Sjálf­stæð­is­flokknum, við fram til apríl í fyrra, þegar Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók við ráðu­neyt­inu í nokkra mán­uði.

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands voru 9,25% þegar Bjarni Bene­dikts­son hætti sem fjár­mála­ráð­herra og alla ráð­herra­tíð Þórdísar Kol­brúnar, en eru nú 7,5% og hafa lækkað um eitt pró­sentu­stig í tíð nýrrar rík­is­stjórnar sem tók við fyrir tæpu ári. Þeir hafa staðið í stað frá því í maí vegna þess að 12 mán­aða verð­bólga hefur ekki náðst niður og er nú svipuð og í febr­úar.

Kristrún hafi stöðvað vaxtalækkun

Guðrún sagði í ræðu sinni að vaxta­lækk­un­ar­ferlið hafi haf­ist á vakt Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„En Sam­fylk­ingin lætur ekki sann­leik­ann skemma gott slag­orð og hún bregst heldur aldrei vondum mál­stað. Vaxta­lækk­un­ar­ferlið hófst einmitt í tíð fyrri rík­is­stjórnar með okkar mann, Bjarna Bene­dikts­son í fjár­mála­ráðu­neyt­inu og svo í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Grein­inga­deildum bank­anna bar svo saman um að vextir myndu taka að lækka á kom­andi fjórð­ungum og það ríkti bjart­sýni í sam­fé­lag­inu. Svo tók rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur við og hefur tek­ist á örskömmum tíma að stöðva vaxta­lækk­un­ar­ferlið,“ sagði Guðrún í ræðu sinni.

Guðrún lýsti undrun og hneykslun yfir því að Kristrún Frosta­dóttir hefði lagt ábyrgð­ina á verð­bólgu á fyrri rík­is­stjórn.

„En botn­inn tók end­an­lega úr þegar for­sæt­is­ráð­herra leyfði sér að kenna okkur um hávaxta­stigið – okkur! Mikill er máttur okkar Sjálf­stæð­is­manna í stjórn­ar­and­stöðu ef verð­bólgu­skot núna í októ­ber og nóv­em­ber er okkur að kenna. Sú sak­bend­ing er alveg stór­brotin nýj­ung. En þetta á ekki að koma okkur Sjálf­stæð­is­mönnum á óvart. Þau skreyta sig með ábyrgð og festu okkar Sjálf­stæð­is­manna, en heim­færa á sama tíma eigin mis­tök upp á okkur. Mál­flutn­ingur Kristrúnar Frosta­dóttur í ræðu­stól Alþingis í vik­unni var svo ævin­týra­legur að ég er eig­in­lega orðin spennt að heyra hvað við Sjálf­stæð­is­menn gerum af okkur næst“.

Ástæðan fyrir mik­illi vaxta­hækkun Seðla­bank­ans er af hag­fræð­ingum talin vera fram­boðs­skortur vegna áhrifa við­bragða við Covid-far­aldr­inum, svo sem rofs á aðfanga­keðjum, og svo þau við­brögð rík­is­stjórna og seðla­banka að auka rík­is­út­gjöld og lækka veru­lega stýri­vexti, sem leiddi til mik­illar hækk­unar á fast­eigna­verði. Bæði verð­hækkun fast­eigna­verðs, sem hefur ýtt mest undir verð­bólgu, og svo mæld verð­bólga og stýri­vextir, hafa verið mun hærri á Íslandi en í sam­an­burð­ar­löndum. Ýmsar skýr­ingar hafa síðan verið færðar á því hvers vegna verð­bólga, og þar með hækkun fast­eigna­verðs og húsa­leigu, hafi ekki sjatnað hér á landi. Guðrún benti á ábyrgð borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans í Reykja­vík á því að tak­marka fjölgun lóða til hús­bygg­inga, en hann er leiddur af Sam­fylk­ing­unni.

Vill lækka tekjuskatt

Guðrún boð­aði skýra stefnu, sem væri að lækka skatta.

„Sjálf­stæð­is­menn hafa beðið um skýra stefnu frá for­manni og hér er hún: Vextir verða að lækka og styrk stjórn Sjálf­stæð­is­manna í rík­is­fjár­málum er ein meg­in­for­senda fyrir vaxta­lækk­un­ar­ferli. Við viljum lækka tekju­skatt­inn. Við viljum gagn­gera end­ur­skoðun á trygg­inga­gjald­inu. Og við viljum lækka veltu­mörk virð­is­auka­skatts svo ein­yrkjar og lítil fyr­ir­tæki fái meiri slaka til að vaxa og dafna.“

Tekju­skatts­pró­senta hefur hins vegar ekki breyst frá því Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var í rík­is­stjórn og Bjarni Bene­dikts­son var for­sæt­is­ráð­herra. Skatta­lækk­anir eru af hag­fræð­ingum taldar orsaka hækkun verð­bólgu, en nið­ur­skurður í útgjöldum rík­is­ins verkar til lækk­unar verð­bólgu.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur farið lækk­andi í könn­unum. Hann mæld­ist með 17,6% stuðn­ing í síð­asta þjóð­ar­púlsi Gallups í lok októ­ber á meðan Sam­fylk­ingin hlaut 32% stuðn­ing.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórarinn Helgason skrifaði
    Vesalings konan.
    0
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Þetta er smá áhyggjuefni, veslings manneskjan. Manneskjur sem gangast við einhverju sem stjórnmálafræðingar kalla hægri eitthvað . . . . virðast vera að missa vitið endanlega. Svo sem ekki mikil breyting. Þessi sjálfhverfi sýndarveruleiki sem þetta blessaða fólk vefur sig inn í er farin að taka á sig skrítnar myndir. Þetta er mögulega að stefna í meira hættuástand en hefur verið. Ætli sé ekki hægt að hjálpa þessu fólki eitthvað. Mögulega væri hægt e.t.v. að finna töflur í apótekinu handa þeim, þannig að þetta blessaða fólk vakni til lífsins.
    Það gæti orðið meiri hætta af þessu fólki, fyrir samfélagið, ef þetta vesalings fólk yfirgefur raunveruleikann alveg og hverfur inn í sýndar heiminn sinn. Ætli það sé lögmál að frekju- , valda- og græðgisfólkið vaxi alltaf út úr raunveruleikanum og svífi um í veröld sýndarveruleikans, þar sem það sjálft er hafið yfir allt og alla. Vonandi rætist eitthvað úr þessu, svo ekki verði það sem virðist stefna í.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár