Enskumælandi ráðið gagnrýnir niðurskurð í íslenskukennslu

Ensku­mæl­andi ráð Mýr­dals­hrepps setur sig upp á móti því að skorið verði niður í íslensku­kennslu fyrir inn­flytj­endur í fjár­lögum næsta árs. Tveir þriðju íbúa sveit­ar­fé­lags­ins eru af erlendum upp­runa og lýsti einn íbúi í Vík því í sumar að fólk tal­aði alla jafna saman á ensku í bænum.

Enskumælandi ráðið gagnrýnir niðurskurð í íslenskukennslu

nsku­mæl­andi ráð Mýr­dals­hrepps mót­mælir harð­lega áform­uðum nið­ur­skurði rík­is­stjórn­ar­innar til íslensku­kennslu fyrir nýbúa í fjár­lögum næsta árs. 

„Fréttir af nið­ur­skurði til íslensku­kennslu í fjár­laga­frum­varpi 2026 slá okkur harka­lega hér í Vík í Mýrdal þar sem yfir 67% íbúa hefur annað móð­ur­mál en íslensku. Góð, skil­virk, og fjöl­breytt íslensku­kennsla fyrir öll er mik­il­vægur hluti af því að inn­gild­ing tak­ist vel til,“ skrifar ráðið í nýlegri umsögn til fjár­laga­nefndar Alþingis. 

Bendir ráðið á að mik­ill ávinn­ingur sé fólg­inn í því fyrir aðflutta að læra íslensku sem og sam­fé­lagið í heild. „Að hafa tök á tungu­máli þess lands sem þú velur að búa í opnar dyr í allar áttir.“

Lækkar úr 564 milljónum í 361

Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar er gert ráð fyrir 361 milljón í íslensku­kennslu fyrir útlend­inga á næsta ári, sem er tals­verð lækkun frá því í ár þegar fram­lagið nam 564 millj­ónum. Var fjár­heim­ild mála­flokks­ins lækkuð um 250 millj­ónir króna vegna tíma­bund­inna verk­efna sem falla niður. 

„Hvernig má það vera að þetta sé staðan þegar skýrsla OECD varpar skýru ljósi á þá stað­reynd að á Íslandi er minnstu varið í tungu­mála­kennslu miðað við önnur lönd þrátt fyrir að fólks­fjölgun á Íslandi sé sú mesta í sam­an­burði við hin OECD-löndin?“ skrifar ráðið. 

Vísa þau þar í skýrslu sem birt­ist fyrir rúmu ári þar sem kemur fram að fjár­veit­ingar á Íslandi séu aðeins brot af þeim sem tíðk­ist á öðrum Norð­ur­löndum til að kenna fólki þjóð­tung­una. 

„Ólíkt öðrum OECD-ríkjum þar sem stór hópur er aðfluttur, hefur Ísland ekki enn mótað skýra stefnu í tungu­mála­kennslu fyrir full­orðna inn­flytj­endur. Þar af leið­andi er Ísland eft­ir­bátur ann­arra ríkja þegar það kemur að þáttum tengdum tungu­mála­kennslu svo sem fjár­veit­ingum, aðgengi að nám­skeiðum, kennslu kenn­ara og sam­ræm­ingu,“ segir í skýrsl­unni.

Í umsögn­inni spyr ensku­mæl­andi ráðið hvenær það eigi að móta stefnu sem bæði inn­gildi fólk inn í sam­fé­lagið og verndi íslensk­una. „Það kostar pen­inga að halda úti öfl­ugri kennslu og það þarf ef eitt­hvað er að auka í heldur en að draga úr fjár­veit­ingum“.

Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emeritus í íslensku, hefur einnig gagn­rýnt lækk­un­ina í fjár­laga­frum­varp­inu. „Þetta er auð­vitað alger­lega for­kast­an­legt. Í stað þess að gefa í og efla íslensku­kennslu er fé til hennar skert stór­lega.“ 

„Maður veit bara að það talar enginn íslensku“

Í sumar ræddi Heim­ildin við íbúa í Vík í Mýrdal sem lýsti því að eftir að hafa flust til Víkur hefði henni litið dálítið eins og hún væri stödd í útlöndum. En Guðrún Berndsen sagði að í Vík ávarp­aði fólk hvert annað á ensku frekar en íslensku. „Þú talar bara ensku alls staðar. Það er dálítið skrítið. Nú er ég vön þessu en í raun­inni er þetta fárán­legt. Maður ávarpar ekki einu sinni fólk á íslensku. Maður veit bara að það talar eng­inn íslensku.“

Þetta væri að sumu leyti furðu­legt því fæstir hefðu íbú­arnir ensku að móð­ur­máli. „Við erum öll að tala ensku og við erum Íslend­ingar og Pól­verjar. Við tölum ekk­ert endi­lega góða ensku. Við getum verið að mis­skilja hvert annað.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Getum við ekki bara talað íslensku við útlendingana, þá neiðast þeir til að læra hana. Þannig lærði ég þýsku í þýskalandi. Það talaði enginn ensku við mig þar.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Íslenskan er eitt af elstu tungumálum sem töluð eru í norðanverðri Evrópu ef ekki það elsta og upprunalegasta. Danskan, norskan og sænskan tóku töluvert miklum breytingum á miðöldum ekki seinna en um 1200 að þessi mál verða fyrir áhrifum að sunnan að einkum þýsku, eitthvað frönsku og jafnvel pólsku og öðrum slavneskum málum. Þannig eru þau orð sem hefjast á be- og for- áhrif breytinga frá þýskunni, be-, ver- og vor-. Mjög fá orð íslenskunnar bera þessi einkenni.
    Ritmál hefst á Íslandi um 1100 sennilega vegna innleiðingar tíundarinnar. Þá þurfti að færa til bókar tekjur kirkjunnar, hverjir höfðu greitt og hvenær. Ekki síðar en veturinn 1117-1118 eru lögin færð í letur að tilstuðlan Hafliða Mássonar á Breiðabólsstað í Vestur-Húnavatssýslu.
    Þýskan verður bókmál með þýðingarstarfi Marteins Lúthers á fyrstu áratugum 16. aldar fyrst á Nýja testamentinu og síðar allri Biflíunni sem hann þýddi úr latínu. Luther mótar þýskt bókmál og staðlar en mállýskur (Dialekt) voru allsráðandi um gjörvallt Þýskaland.
    Við eigum að vera stolt af íslenskunni okkar og stuðla að viðgangi hennar. Það gerum við með því fremur að efla íslenskukennsluna en draga úr.
    Eg umgengst töluvert nýbúa og dáist að þeim hve þeir eru áhugasamir að nema íslenskuna, hlusta, lesa og tala. Eg forðast að nota önnur tungumál en ísensku þegar eg á samskipti við þetta góða og áhugasama fólk. Reyni eg þá að tala skýrt og hægt svo betur skiljist. Nýbúarnir sem sinna sínum störfum á Hjúkrunarheimili Eir í Grafarvogi þangað sem eg kem í hverri viku eru þakklátir. Þeir eiga allt gott skilið og vilja tala íslensku og fá hvatningu til þess.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár